Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 70
72
5923. ,8/5
5924. —
5925. —
5926. —
5927. a%
5928. a4/5
5929. 8,/5
5930. 4/6
5931. —
5932. ,4/6
skeiðinni, að Jón biskup Vidalín haíi átt hana. Hjarta-
myndaður stimpill með C N og stjörnu undir er tví-
settur neðan á skaftið rétt við blaðið. Líkar skeiðar
voru gerðar í Danmörku um 1700.
Stefán Jónsson, Munka-Þverá: Ljár með hinni gömlu
gerð; virðist vera lítið eyddur, 1. 62 sm., ólagður og
ósveigður. A þjóinu eru þrír deplar (•••) og í öðrum
stað T og h 8amandregið; mun það vera smiðsmerkið.
Sami: Ljár með sömu eða líkri gerð, mjög eyddur;
smiðsmerkið þrír deplar (.-.). L. 59 sm.
Sami: Ljár með líkri gerð, eyddur mjög (spík), 1. 47
sm. A honum er merkið II í sporöskjulöguðum stimpli
og í öðrum stað er ártalið 1870 deplað á þjóið.
Sami: Ljáspík, eydd mjög og oddbrotin, með sama
merki og nr. 5925, en ártalslaus; 1. 45 sm. — Þessir
ljáir voru hér á iandi kallaðir íslenzkir ljáir eftir að
upp tókust hinir útlendu, svo kölluðu skozku ljáir, sem
eru samsettir.
Hökull úr dökkbláu damaski, rósofnu, fremur grófgerðu.
Að aftan er kross úr tvenns konar silki, rauðbrúnu, og
eru silfurvírs kniplingar fram með jöðrum krossins.
Framan á er hjarta úr rauðbrúnu silki og T H S' á
hjartanu, og neðanundir því stendur ártalið T•7■8■3•
Hökullinn er heill á öxlum, var smokkað yfir höfuðið.
Fóðraður með blágrænu lérefti, grófu. Frá Álftanesi
á Mýrum.
Gleraugu í silfurumgjörð og með silfurspöngum. Glerin
eru kringlótt, þverm. með umgjörð 3,9 sm. Fyrrum í
eigu Orms Sigurðssonar í Langey.
Skálavog stór, sem verið hefir við verzlanir í Stykkis-
hólmi. Á vogarstönginni stendur annars vegar M H F
— Ano 1770, en hins vegar 1786 — D J S.
Spegill í útskorinni umgjörð málaðri, íslenzkri; nýlega
endurbættur. Stærð glersins 15X9,5 sm. Næst glerinu
er umgjörðin gylt, en út frá er útskurður, málaður blár,
rauður og hvítur.
Magnús Erlendsson gullsm., Reykjavík: Draglöð gömul
íslenzk, úr dragsmiðju; 1. 39,2 sm., br. um miðju 3,6
sm., mjókkar nokkuð til endanna.
Bónorðs spil íslenzk, útg. af Páli Sveinssyni, prentuð í
Kaupmh. 1861. Spilin eru 10 fyrir karlmenn og jafn-