Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 2
4
rétt fyrir sólarlag þann dag; því að orðin »aþr sol gangi af þing-
velli« geta ekki merkt annað en sólarlag frá Þingvelli, þingstaðnum
sjálfum, að sjá1 * *), eða eins og hið sama er orðað í 35. k. þingskþ.8)
»aðr sol se undir«. Fimtudagurinn í 11. viku sumars, fyrsti dagur
11. sumarvikunnar, er 28. júní — 4. júlí eftir hinum nýja (gregorí-
anska) stíl. Um það bil gengur ekki sól af Þingvelli fyr en um kl.
8723), og er það þó furðu snemt, en gjábakkinn vestri veldur, hann
er svo nálægur og svo hár. Þó að sólargangurinn væri lengri um
þetta leyti árs, var þó svo talið, að nótt byrjaði einmitt um líkt
leyti og sól gengur af Þingvelli þessa dagana, í byrjun 11. sumar-
vikunnar, og náttmál voru talin kl. 9. Það er og sérstaklega tekið
fram í krist. laga þ. 17. k.4) um sumarnótt, að hana skuli telja frá
kl. 9—íl/2 (eftir nútíðar stundatali)5).
Samkvæmt 56. kap. þingskþ.6), en sá kap. er um ýms ákvæði
um vorþingin, áttu goðar allir að koma »til þings ondverðz« og
»goði sa er þing hælgi a þar hann scal þar þing hælga enn fyrsta
aptan er þeir coma til þings«, og hann »scal queða a þingmörc hver
ero oc scal hann sva þing hælga sem alþingi«. í Grágás eru nú
engin ákvæði geymd um það, hver helga skyldi alþing, hversu það
skyldi gera né hvenœr. Má þó ganga að því vísu, að til hafl verið
föst lagaákvæði um það og ekki að eins venja. En vér höfum í
einu handriti Landnámabókar áreiðanlega sögn7) um, að alþingis-
helgun fylgdi goðorði þeirra afkomanda Þorsteins Ingólfssonar, af
því að hann hafði látið setja þing á Kjalarnesi, ásamt nokkrum
öðrum höfðingjum, áður en alþingi var sett. Líkur eru til þess, að
menn hafi í fyrstu haft hugfast að þeir menn, er þá fóru með það
goðorð, voru afkomendur hins fyrsta landnámsmanns, Ingólfs Arnar-
sonar, er var talinn frægastur og göfugastur allra landnámsmanna,
og hafði ef til vill fyrstur numið þann stað þar sem alþingi síðar
var háð. Sonur Þorsteins, Þorkell máni, var lögsögumaður 15 ár
og hefir að líkindum verið jafnframt allsherjargoði, og Þormóður
‘) Sbr. þó það er sagt verður hér siðar um skilning eumra á orðunum „sol
komr a þingvöll11.
*) Kb. I. 66. bls.
8) Kr. Kál. i Aarb. f. n. Oldkh. 99, 13. bls.
4) Kb. I. 36. bls.
5) Þennan dag og kvöld munu sumir hafa fengist við að gera upp búðir
sinar og tjalda þær, en margir munu þó liafa látið gera það áður en þeir komu
sjálfir, enda er þess stundum getið í sögunum.
6) Kb. I. 96.-98. bls.
') í viðauka Melab. e. y., sjá ísl. s. I. 336. bls.