Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 17
19
á vatnsuppgangur í kirkjugarðinum að hafa verið orsök til flutn-
ingsins og er það sennilegt. Hafi þingmanna kirkja fyrrum staðið
þarna (þar sem kirkjan var sett af Alexíusi), hefir hún verið lögð
niður á 14. eða 15. öldinni, og er það í rauninni ekki ósennilegt.
Getur verið að Alexíus hafi sett kirkjuna þarna af því að honum
hafi verið kunnugt um að þingmanna kirkjan hafi staðið þar fyrr-
um. — Það er varla efamál, að sögnin um kirkjuflutning Alexíusar
er sönn, og það mun mega telja víst, að í kirkjugarðinum á Þing-
velli hafi verið í fyrstu reist kirkja, og að þar hafi upp frá því
ætíð verið kirkja unz Alexíus flutti hana. Kirkjugarðurinn mun
vera sá sami og í fyrstu og alla tíð síðan og hinn eini, sem áÞing-
velli hefir verið. I honum er þykkur og rakafullur jarðvegur,
því að hann liggur fremur lágt. Hann er vafalaust sá »búanda
kirkjugarðr«, sem þráfaldlega er nefndur í Grágás og sögunum, í
tilefni af því að eindagað var að gjalda þar sektir o. fl. o. fl. mið-
vikudaginn í mitt þing, sem vikið skal að síðar. — Nú vill svo til
að ráða má af einum stað í Ljósvetn. s. XVII. kap.1) að kirkja hafi
verið á Þingvelli sumarið 10142), og er þar sagt frá því, að þing-
menn sóttu þangað tíðir. »Þat var venja þeirra bræðra, Guðmundar
ok Einars, er þeir váru á alþingi, at þeir gengu til tíða báðir saman,
ok sátu sunnan undir kirkju; en flokkr Éinars stóð vestr frá þeim,
en Guðmundar flokkr austr, var svá, hvárt er var i millum þeira
margt eða fátt. Þórir Helgason sat næst Einari, en næst Guðmundi
sat Vígfúss Víga-Glúmsson«3). — »Ok um daginn, þá er þeir gengu
til tiða, sátu þeir þá enn í rúmum sínum...............Barn eitt hvarflaði
þar á hellunum fyrir Guðmundi«4). Þessi síðustu orð eru í þessu
sambandi mjög eftirtektarverð. Frásögnin um hinn »litla atburð«
er hér varð, stendur í svo nánu sambandi við hin merkilegu mála-
ferli Guðmundar og Þóris á þessu þingi að hún verður ekki slitin
þar frá og ber hún með sér áreiðanlegleika sinn að öllu leyti. Fyrir
sunnan þá kirkju (búanda kirkju), sem verið hefir í kirkjugarðinum,
hafa að líkinuum aldrei neinar hellur verið. Þessi kirkja, sem hér
ræðir um í Ljósv. s., hefir því ekki verið »búanda kirkja«, en frá
sögnin ber jafnframt með sér að hún var jafnframt kirkja þing-
manna. — Frásögnin í Ljósv. s. sannar aftur á móti engan veginn
hina almennu sögn um að þingmanna kirkja hafi verið þar sem
Alexíus setti kirkjuna við flutninginn, og þar sem hún er nú, en
») Útg. Bókmf. 178. bls.
2) Samkv. tímatali Gruðbr. Vigfússonar í Safni I., 487.—488. bls.
s) Ljósvetn. s. 175. bls.
‘) Ibid. 178. bls.
*3