Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Qupperneq 63
67
spilltar. Það eftir er brúka eigendur til slægna“. (Eigendur voru
}>á að hálfu hvor: Jón Jónsson á Strönd og Marteinn lögréttumaður
Björnsson á Reyðarvatni). „Miklum parti af högum hefir blásturs-
sandur eytt. Þessi jörð bykir mönnum óbyggileg“. Hversu lengi jörð-
in var þá í eyði, sést nú ekki, en í eyði er hún og ekki talin með
öðrum byggðum jörðum 1733. Aftur er hún þó í byggð 1749 og
1759, en þá er mat hennar lækkað í 6 hundruð, landskuld 40 álnir
og 1 kvígildi. Sama jarðarmat gildir 1803, en þá eru þar þó 6 kýr
og aðeins 6 kindur. (Fátt sauðfé þá alls staðar eftir fellishrunið
1802). — Lengi hefir Lambhaginn verið ,,bænda eign“. Þó var
hann eitt sinn stólseign, þar til 1562, að Gísli biskup Jónsson lætur
stólsjörðina Lambhaga í Oddasókn til Bjarnar lögréttumanns Þor-
leifssonar á Keldum fyrir þann hlut, er hann taldist eiga í Krossi í
Landeyjum. (Fbrs. XIII. 753). Lambhagi var þá um skeið eign
Keldnabúsins, en löngu síðar er Lambhagi eign Björns prófasts í Odda
Þorleifssonar. Er þá, 1689, engin óvera afgjald jarðarinnar: 6 lamb-
ær og 6 kvígildi, og þetta er aðeins 15 árum áður en hún fór alveg
í eyði. — Samanber og mismuninn 1759. Síðan 1749 hefir Lamb-
haginn aldrei legið í eyði, og er nú sæmileg bújörð, ágangslaus. Virt
1942 3900 kr. (hús 2500 kr.).
HJÁLEIGUR ODDASTAÐAR
Þær hafa ekki verið færri en 9 alls, og 7 í byggð samtímis nokkuð
lengi, en byggðar hafa þær verið mjög misfljótt á öldum. Nú eru 3
eftir byggðar (og 1 nýbýli) tvær þeirra meðal hinna elztu: 1. Odd-
hóll. Hann er nú orðinn sérgirt jörð og séreign ábúandans (Elíasar
Steinssonar, áður á þessari öld). 2. Vindás. Ef til vill gæti annað
hvort þessara býla verið byggt um miðja 13. öld (sbr. Sögu Odda-
staðar, 26). Báðar eru þær nefndar — fyrst svo eg viti — 1583, og
þá er til 3. hjáleigan, en hún er ekki nafngreind. Gæti verið Kragi,
því að hann mun byggður í tíð séra Jóns Einarssonar í Odda, kring-
um 1530. Eigi hafa byggðu hjáleigurnar verið fleiri en þrjár 1583,
en hvort þá hafa verið til eitt eða tvö yfirgefin býli, verður nú ekki
vitað. Ekki eru fleiri en eitt eða tvö, sem hafa lagzt í eyði vegna
blásturs. Hinar hafa verið teknar til rýminda undir höfuðbólið aftur.
Verða hér nú rakin nöfn þeirra, og byrjað á þeim elztu og óvissustu,
sem verið hafa utan túns:
9. Kampastaðir. Þeir hafa verið vestur frá Odda, nærri miðja