Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Blaðsíða 84
88
ég verið að steypa ofan í grunninn. Fyrrnefndan dag vorum við að
hreinsa mold ofan af malarlagi því, sem er í botni grunnsins, og
kom þá Kristmundur bróðir minn niður á silfur það, er fyrr um
getur.
Silfur þetta fannst um 2,5 m undir yfirborði jarðar, eins og það
er á bæjarhólnum í Ketu. Jarðlag það, er rutt var úr grunninum,
var þannig: Efst veggjarrústir, þar næst öskulag með allmiklu af
Silfursjóðurinn frá Ketu (eðlileg stærð). Ljósm. Gísli Gestsson.
dýrabeinum, svo kom allþykkt svart moldarlag og loks nokkuð gróf
möl, og var silfrið þar sem moldin og mölin mættust, og þar innan
um dálítið af beinabrotum, sem helzt virtust vera úr höfuðkúpu.
Bein þessi voru svo illa farin, að þau tolldu ekki saman, enda mun
iarðýtan hafa farið yfir bæði þau og silfrið, er hún vann í grunnin-
um, og þykja mér miklar líkur til, að hún hafi sópað nokkru af
hvorutveggja í burtu. Þess má geta, að við fundum þarna á nokkr-
um öðrum stöðum í grunninum neðst í moldarlaginu beinabrot, er
helzt líta út fyrir að vera úr mönnum, en þau eru mjög illa farin.
Húsgrunnur sá, er nefndur er hér, er um 15 m norðan við núver-