Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Blaðsíða 64
68
vegu að Ytri Rangá, rétt hjá Kampastaðatjörn (eða vatni?). Sést
þar enn fyrir algrónum rústum, því að landið er þar óblásið. Enginn
veit um upphaf eða endi þeirrar byggðar og ekki einu sinni fyrir
Iveim til þrem öldum meira en þetta: ,,Kampastaðir. Segjast nokkrir
heyrt hafa sagt skyldi . . . byggð verið hafa, eður í annan máta sel
frá Odda, sést þar og nokkuð til tóttarbrota. Munnmæli eru, að
bygðin hafi aflagzt vegna reimleika“.
Þá er líka á sama stað (Jarðabók) nefndur Núningur og sagt um
hann: ,,Þykjast menn heyrt hafa, þar hafi til forna bær verið, en
engin sjást þar merki til. Landplátsið er graslaust með sandi, mold
og móklettum, og þar því aldeilis óbyggilegt“.
Hvort sem þarna kann nokkru sinni að hafa verið smábýli eða
ekki, þá vil ég ekki telja það með eyðibýlum, af þremur ástæðum:
1. Núningur hefir hlotið að vera mjög nærri — ef ekki alveg á sama
stáð — og Dvergasteinn. Gæti því og vel verið sama býlið — breytt
um nafn? 2. Þar sjást alls engar byggðarleifar, og engar aðrar heim-
ildir eða likindi. 3. Nafnið ,,Núningur“ virðist mér líklegast, að dregið
sé af einkennilegum uppblæstri þarna á litlum bletti örfoka, og sé
því aðeins örnefni, á þeim tíma orðið til. — Heldur vil ég telja einu
býli of fátt en of margt.
10. Jónshjáleiga — Tröð? og For? Hún er byggð á sama
tímabili og Dvergasteinn, af sama prófasti (Snæbirni Stefánssyni)
fyrir miðja 17. öld með sama afgjaldi (3 kvígildi) 80 álnum. Var
þar og líkt bú (5 kýr og 90 fjár, hjá Jóni Jónssyni) 1711. Ekki
verður nú vitað með vissu, hvar þessi hjáleiga stóð, og ekki heldur
Tröð. En þá (1711) hefir verið álitið, að þessi tvö nöfn hefðu verið
notuð um sama býlið, því síðara nafnið er í svigum á eftir hinu, og
alls engin umsögn fylgir því. Eigi þykir mér ólíklegt, að For sé líka
sama býlið, ef ekki beinlínis, þó svo að þau hafi öll staðið við vestur-
traðir staðarins og aldrei verið í byggð, nema eitt þeirra í senn, og
kemur þá í sama stað niður, sem eitt væri. Þá má líka vel vera, að
býli þetta, Jónshjáleiga (Tröð), hafi staðið vestan við mynni sa.-trað-
anna, og þá inni á bezta staðartúnmu. Þar er bali, sem eigi er ólíkur
rústaleifum, enda gat þar verið nautafjós eða aðrar staðarbyggingar
frá fyrri öldum. Oft verður nafnbreyting á smá-kotum, allra helzt
þeim, sem aðeins um sinn eru kennd við ábúendur. Það eitt er nú
um þetta vitanlegt, að For stóð hátt í slakkanum, við Vindkvörn,
vestur frá heimabænum, og að séra Skúli Skúlason lagði býli þetta
niður 1888, og flutti þangað fjós og hlöðu, sem áður stóð suður frá
bænum, riiðri á flata túninu. En kvígildin þrjú tók prestur heim. —