Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Page 80

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Page 80
84 Líkaninu lætur Jens fylgja eftirlíkingu af einu rennijárni, bjúgjárni, en vitanlega voru af þeim fleiri tegundir eftir þörfum. I líkaninu er sýndur diskur, sem verið er að renna. Mér er ekki kunnugt, hvenær stignir rennibekkir bárust fyrst hingað til lands. Um sögu rennismíða hér á landi er yfirleitt allt óljóst. Hvorki í fornsögum né fornbréfum er nokkru sinni á þær minnzt, og fornleifar vorar fræða oss ekki heldur mikið um þetta mál. Það er þó líklegt og allt að því víst, að aðferðin hefur verið þekkt og notuð hér á landi frá upphafi byggðar í landinu, og hníga að því þau rök, sem nú skal greina: Renndir smáhlutir úr tré, bollar og öskjur, hafa tíðkazt á Norður- löndum að minnsta kosti síðan í upphafi járnaldar, 400—200 f. Kr., því að þeir hafa fundizt í hinum miklu dönsku mýrafórnum, sjá G. Rosenberg: Hjortspringfundet, Nordiske Fortidsminder III, 1, S. Múller: Ordning af Danmarks Oldsager II, Jernalderen, nr. 483—85. I öllum þeim fundum, sem hér um ræðir, hefur varðveitzt óvenju- lega mikið af trémunum, og að því leyti eru þeir sambærilegir við Oseberg-fundinn. Ekki heldur þar láta renndir tréhlutir á sér standa, sjá Oseberg-fundet II, bls. 196—97, mynd 130, sem er af dálitlum renndum trébolla. I hinum fræga víkingaaldarbæ, Heiðabæ í Slés- vík, hafa einnig verið grafnir upp renndir diskar, sjá H. Jankuhn: Haithabu. Eine germanische Stadt der Frúhzeit. Neumúnster 1938, bls. 128—29, mynd 116. Þessir fundir allir benda til, að fæð renndra tréhluta í forsögulegum fundum stafi fremur af forgengileik efnisins en að þeir hafi í raun og veru verið fátíðir. Hér á landi er fátt eitt til af tréhlutum frá fornöld og miðöldum og enga fræðslu um þetta efni að sækja til þeirra. En í miðalda- byggðunum á Grænlandi, sem á sinn hátt voru íslenzkar, hafa tré- munir sums staðar varðveitzt frábærlega vel, einkum þó í bæjar- rústum þeim, sem upp voru grafnar í Austmannadal í Vestribyggð 1937. Meðal gripanna, sem þar fundust, eru brot af mörgum tré- diskum og fötum, sem augljóslega eru rennd og minna mjög á rennd tréílát, sem hér eru til á safninu (t. d. Þjms. 4145, 4146, 4476, 2932 o. fl.) Sjá um þetta Meddelelser om Gronland 88, nr. 2, bls. 138—139, mynd 129 og 133, og 89, nr. 1, bls. 280—81, mynd 174. Þessir grænlenzku hlutir eru frá 13. og 14. öld, og það má kalla allt að því víst, að þessa tækni hafa Grænlendingar ekki haft umfram íslendinga, heldur hefur slíkt einnig verið þekkt hér á

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.