Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Side 83

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Side 83
FUNDINN FORN SILFURSJÓÐUR I KETU Á SKAGA Fornir silfurfundir eru afar fátíðir á íslandi. Stærstur peninga- funda er silfursjóðurinn frá Gaulverjabæ, sem ég skrifaði ítarlega um í Nordisk numismatisk ársskrift 1948. Jafnframt birti ég þá yfir- lit yfir aðra forna íslenzka peningafundi, sem raunar eru bæði fáir og smáir. Sjóðir með gangsilfri, brotasilfri, eru þó enn fátíðari, því að hingað til hefur oss aðeins verið kunnugt um einn, nefnilega silfur- sjóðinn frá Sandmúla í Suður-Þingeyjarsýslu. Um þennan sjóð hefur Matthías Þórðarson skrifað í Árbók fornleifafélagsins 1909. Silfrið vegur 304 gr og er að samsetningi til venjulegt meðal sjóða frá vík- ingaöld, sundurklipptir hringar og stengur og brot af vönduðum skartgripum. Engir peningar voru þar, en Gaulverjabæjarsjóðurinn aftur á móti var einvörðungu peningar, flestir enskir og þýzkir, en nokkrir arabiskir, danskir og sænskir. Árið 1952 bættist Þjóðminjasafninu nýr silfurfundur, sem í eru bæði peningar og brotasilfur. Þykir mér rétt að geta þessa fundar og birta af honum mynd í Árbók, en áður hef ég um hann skrifað í Nordisk numismatisk unions medlemsblad 1953. — Þessi sjóður er frá Ketu, Skefilsstaðahreppi, Skagafirði, og kom á safnið 13. 12. 1952. Um fundaratburði kemst Gunnsteinn Steinsson á Hrauni á Skaga m. a. svo að orði í bréfi til mín: ,,Þann 1. nóv. síðastliðinn (1952) fann ég undirritaður ásamt tveimur bræðrum mínum dálítið af silfri grafið djúpt í jörðu. Atvik að fundi þessum eru þau, er nú skal greina: Á síðastliðnu ári keypti ég hálfa jörðina Ketu á Skaga, sem er og mun lengi hafa verið kirkjustaður. Jörðin hafði þá verið í eyði í 9 ár og voru öll hús jarð- arinnar fallin og niðurnídd. í ágúst í sumar sem leið fékk ég jarðýtu til að grafa fyrir grunni að væntanlegu íbúðarhúsi, en nú í haust hef

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.