Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 8

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 8
14 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Ameríku og fengið á sig ævintýraorð. Ekki hefur hann þó komið bláókunnugur til Norðfjarðar 1920 því að í árslok 1894 er hann í sóknarmannatali skráður „vetrarsetumaður“ hjá Gísla Hjálmars- syni „borgara" að Nesstekk þar sem nú er miður Neskaupstaður. Gísli Hiálmarsson var frá Brekku í Mjóafirði og rak um skeið verslun á Norðfirði, bæði einn og með Konráði bróður sínum sem síðar tók við verslunaraðstöðu þeirra, en Gísli fluttist vestur á land. Á síðari ár- um sínum rak hann verslun í Reykjavík. Jósef Axfirðingur var mikill að vallarsýn og hafði á sér höfðingjasnið, síðskeggjaður og kempuleg- ur. I margmenni átti hann til að vera hávær og óþjáll, gat verið ómild- ur á manninn og jafnvel hranalegur. Allt bendur til að undir trölla- stakki hans hafi slegið viðkvæmt hjarta, og víst er um það að hann var vinur vina sinna. Jósef fæddist á Leifsstöðum í Axarfirði 23. febrúar 1862. Foreldrar hans voru hjónin Jósef Brynjólfsson og Helga Eiríks- dóttir, þá í húsmennsku á Leifsstöðum. Með Jósefi Axfirðingi fluttist að Fannardal bústýra hans Ragnhildur Jónasdóttir, fædd 19. febrúar 1885 á Leifsstöðum í Vopnafirði. Foreldrar hennar voru hjónin Jónas Jónsson og Björg Davíðsdóttir. Hún hét fullu nafni Ragnhildur Stef- anía og taldi sig ævinlega fædda 18. febrúar. Ragnhildur var um margt sérstæð kona, listhneigð, skáldmælt, bar umhyggju fyrir öllu sem lífs- anda dregur, hvort sem voru músarungar, fuglar himinsins eða bú- fénaður. Hún minnir um margt á helgar konur í árdögum kristn- innar. Jónas Árnason hefur skrifað um hana fallega bók, UncLir Fönn, Reykjavík 1963. Jósef bjó til dauðadags í Fannardal. 1 bana- legunni var hann fluttur út að Skorrastað til þess að hægra væri fyrir lækni að vitja hans. En vatn handa honum varð að sækja inn að Fannardal. Svo mikla trú hafði Jósef á heilnæmi og lífsmagni vatns- ins í dalnum sínum að vatn út um miðja sveit, þótt ómengað væri, gat ekki komið í þess stað. Hann andaðist á Skorrastað 22. október 1946. Ragnhildur stóð alla stund við hlið Jósefi og hélt áfram búskap að honum látnum. Hún brá búi haustið 1955 og fluttist út í Neskaupstað. Þar dó hún 5. desember 1968.21 Ragnhildur er síðasti ábúandi í Fannardal. Af henni keyptu jörðina þeir feðgar Guðröður Jónsson kaupfélagsstjóri í Neskaupstað og 21 Um síðustu daga Jósefs og Ragnhildar í Fannardal sjá TJndir Fönn, einkum bls. 177—181 og 205—212. Um trú Jósefs á vatninu í Fannardal hef ég orð Friðjóns Guðröðarsonar lögreglustjóra á Höfn í Hornafirði. Um ætterni Jósefs má lesa í Æ Au nr. 7825 og þar á undan, en Ragnhildar í nr. 7715—7721 og þar á undan. Kemur þá í Ijós að þau Jósef og Ragnhildur hafa verið nokkuð skyld í ættir fram, bæði af ætt Fjallabræðra.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.