Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 12
18
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
skuldlaus eign búsins kr. 1932,14.2 7 Virðist það vera dágóð afkoma
miðað við sinn tíma. Til viðmiðunar má geta þess að hálf jörðin
Fannardalur er í skiptagerðinni metin á kr. 650,00. Skuldlaustbú eftir
Helgu Marteinsdóttur var hins vegar kr. 936,26, og má það heita jafnt
og hún tók við úr búi eftir mann sinn (kr. 966,07).28
Eftir fráfall Helgu Marteinsdóttur var haldið uppboð í Fannardal
og fór það fram 1. maí 1895.29 Var þá seldur bæði lifandi peningur
og dauðir munir, samtals 270 „númer“, allt eign dánarbúsins, og að
auki 13 númer (af einhverjum ástæðum skrifað nr. 4—16) annarra
eign. Nam andvirði hins selda alls kr. 2018,25. Nr. 232 er krossmark,
slegið Sveini Sigfússyni á Nesi fyrir 34 krónur. Er þar vissulega
kominn „krossinn í Fannardal" sem nú er í eigu Guðmundar Sigfús-
sonar, sonarsonar Sveins Sigfússonar, en Guðmundur er umboðs-
maður og franskur konsúll í Neskaupstað.
1 uppvexti mínum heyrði ég oft að séra Jón Guðmundsson á Nesi
hefði boðið í krossinn á móti Sveini Sigfússyni.30
Ekki er allskos.tar auðvelt nútímamanni að gera sér fulla grein
fyrir hvers virði 34 krónur voru árið 1895. Til viðmiðunar skal þess
getið að á uppboðinu í Fannardal seldist grá hryssa á 155 krónur,
skjóttur hestur á 101 krónu, kvígukálfur (aldur ekki tilgreindur) á
32 krónur, kýr á 126 krónur, gemlingar til jafnaðar á um það bil
12 krónur hver, sauðir á 15—18 krónur hver, hjólbörur á 5 krónur.
Andvirði krossins á uppboðinu 1895 hefur því verið jafnvirði tveggja
27 Skiptabók Suður-Múlasýslu (í Þjskjs., sýsluskjöl S.-Múl. VIII, 13) 1874—
1888, bl. 167—170.
28 Sama skiptagerð og skiptabók S.-Múlasýslu (Þjsks., sýsluskjöl S.-Múl.
VIII, 14) 1888—1901, bl. 129—130.
29 Uppskrifta- og uppboðsbók fyrir Norðf jarðarhrepp 1893—1899, bl. 24—28.
Bókin kom í Þjskjs. í september 1970.
30 Ekki man ég gjörla heimildarmann minn fyrir þessu atriði. Vel má það hafa
verið faðir minn, Vilhjálmur Stefánsson (f. 28. apríl 1877, d. 12. apríl
1953), en fremur ætla ég að það hafi verið einhver eftirtalinna manna sem
voru tíðir gestir í Hátúni, bernskuheimili mínu: Guðmundur Stefánsson í
Laufási, sem áður er til vitnað, Sigurlínus Stefánsson, föðurbróðir minn
(f. í Seldal 10. nóv. 1872, d. í Skuggahlíð 18. júní 1954) eða Þorbergur Guð-
mundsson á Tröllanesi (sonur Guðmundar Magnússonar og Helgu Marteins-
dóttur í Fannardal. Þorbergur var fæddur í Fannardal 30. apríl 1879, en
dó í Neskaupstað 6. júlí 1958). — Víst er um það að uppboðsgerðin ber það
með sér að séra Jón var á uppboðinu og honum voru slegnir þar nokkrir
munir. Þeir Sveinn Sigfússon og séra Jón mægðust síðar því að sonur
Sveins, Sigfús kaupmaður, gekk að eiga Ólöfu Guðmundsdóttur, systur
séra Jóns, 14. október 1906.