Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 15
RÓÐUKROSSINN í FANNARDAL
21
fleira fólk, þ. á m. sunnlendingar og færeyingar sem lágu þar við
eða reru á bátum norðfirðinga. Verslunarstaður á Nesi var löggiltur
13. desember 1895.36
Dvöl Sveins Sigfússonar á Nesi varð mjög svo endaslepp en til
þess virðast hafa legið algerlega persónulegar ástæður. Árið 1899
flyst hann með fjölskyldu sína, konu og fjögur börn, til Kaupmanna-
hafnar. Sigfús sonur hans (fæddur á Bakka í Norðfirði 26. okt. 1875)
hafði lokið stúdentsprófi í Reykjavík 1897 og var um þær mundir
við lögfræðinám í Höfn. Árið 1903 flyst svo kona Sveins, Þorbjörg
Runólfsdóttir (f. á Stuðlum í Norðfirði 4. nóvember 1850, dó í Nes-
kaupstað 12. september 1941) með börnum sínum til Norðfjarðar,
en Sveinn er þar ekki með í för og mun ekki hafa komið til dvalar á
Norðfirði eftir það.37 Er svo að sjá að skilnaður þeirra hjóna hafi
verið ráðinn þegar þau héldu til Kaupmannahafnar.
Samkvæmt manntali í Hafnarfirði er Sveinn Sigfússon kominn
þangað 1902 og með honum bústýra hans, Sigríður Pétursdóttir.
Til Reykjavíkur flytjast þau í Sveinshús við Lindargötu hinn 3. maí
1903. Síðar flytjast þau að Hverfisgötu við Vatnsstíg (þá Hverfis-
gata 12, nú Hverfisgata 50). Þar eru þau gefin saman í hjónaband
9. febr. 1906 samkvæmt konunglegum leyfisbréfum útgefnum 30.
janúar og 2. febrúar 1906 en leyfisbréf til að skilja við Þorbjörgu
Runólfsdóttur er gefið út 11. september 1905.38 Munnlegar heim-
ildir eru fyrir því að Sigríður dvaldist sumarlangt eða fleiri sumur
á Norðfirði við störf hjá Sveini Sigfússyni áður en Sveinn og Þor-
bj örg héldu til Hafnar.
Sveinn Sigfússon dó í Reykjavík 13. apríl 1911. Seinni kona hans,
Sigríður P. Sigfússon, eins og hún skrifaði sig eftir að hún giftist
Sveini, var fædd í Hafnarfirði 28. janúar 1877. Foreldrar hennar voru
Margrét Friðriksdóttir og Pétur Þorláksson, bæði búsett þar. Sigríður
dó 9. febrúar 1958.
Af skiptaskjölum þeim, sem áður hefur verið til vitnað, er ljóst
að Sveinn hefur á þeirra tíma mælikvarða verið auðugur maður er
hann fór frá Norðfirði en hér verður ekki farið lengra út í þá sálma.
Þó að Nes og raunar allur Norðfjarðarhreppur væri ekki stórt versl-
30 Stjórnartíðindi fyrir Island 1895, A-deild, bls. 182.
37 Heimild um búferlaflutning' Sveins Sigfússonar og fjölskyldu hans er skrá
um burtflutta og innkomna í prestþjónustubók Skorrastaðar 1890—1920
(í Þjskjs.).
38 Prestþjónustubók dómkirkjuprestakalls í Reykjavík 1899—1909 og skjöl
bæjarfógetans í Reykjavík (XXX nr. 38) og manntal í Reykjavík 1903.