Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 100

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Page 100
106 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS bæjum í Eyjafirði „sem sjaldgæfar fornminjar. Þetta voru tvær stoðir, sem stóðu sín hvoru megin bæj ardyranna, og vitum við ehki til, að þess konar súlur séu notaðar nokkurs staðar annars staðar á Is- landi. Þær mjókkuðu upp og stóðu nálægt þremur álnum upp úr þakinu. Efst á þeim er skorinn hnappur eða fornt þurshöfuð."1 Eggert Ólafsson höfundur ferðabókarinnar bar ennfremur fram eftirfarandi gagnrýni: „Tvennt er þó við súlur þessar að athuga. I fyrsta lagi voru þær alls ekki fornar, heldur endumýjaðar af nú- verandi eiganda eftir gamalli fyrirmynd. 1 öðru lagi, ef litið er á nafnið, að þar sem súlur þessar draga nafn af öndveginu eða há- sætinu í stofunni, þá ættu þær að standa þar til beggja hliða og ná upp í gegnum þakið, svo að gestur, sem að garði ber, gæti þegar í stað vitað utan frá hvar öndvegið væri eða hvar húsbóndann væri að hitta. Mest þótti í það varið, að súlurnar væru sem hæstar.“2 Eftir því sem næst verður komist um innansmíð húsa frá vík- ingaöld ætti öndvegissúla að vera einn af innstöfum hins forna þrí- skipaða langhúss, eldaskálans, og standa þarafleiðandi undir öðrum hvorum hliðásnum. Ekkert í fornum frásögnum styður þá kynlegu hugdettu Eggerts að öndvegissúlur hafi gengið uppúr þekjunni. Ótrúlegt er að forfeður okkar hafi lagt slík djásn, sem öndvegissúlur hafa verið í þeirra augum, í klærnar á veðurguðunum. Skýi’ing Egg- erts hlýtur að vera sprottin af því að hann sér öndvegissúlurnar teygja sig upp fyrir bæjardyraþekjuna á viðkomandi bæjum. Hann segir ennfremur að súlur þessar beri nafn af öndveginu í stofunni. Þetta tel ég einnig hæpna skýringu. Sú vitneskja, sem handbær er um gerð og uppbyggingu hinnar fornu stofu, sýnir að innstafi er þar ekki að finna. Flest bendir og til þess að stofan komist ekki í tísku hérlendis fyrr en upp úr kristni, en öndvegissúlur hafa menn hingað til tengt heiðnum sið. Orðið súla kemur allvíða fyrir í úttekt- um á 17. öld í merkingunni innstoð í ásahúsi,3 reyndar eingöngu í fjósum og hlöðum, en er greinilega á undanhaldi fyrir öðrum orðum. Uppbygging hins þrískipta langhúss víkingaaldar má í stórum dráttum marka af grindarsmíð þeirri er enn sést á fjósum og hlöðum víða um land (sjá 1. mynd). Það kemur ennfremur fram í fornum sögum að öndvegið hafi verið fyrir miðjum langvegg.4 Öndvegis- súlur ættu þá að hafa verið súlur þær er stóðu hvor sínu megin miðstafgólfs eldaskálans eins og Valtýr Guðmundsson hefur sýnt á mynd sem alþekkt er (sjá 2. mynd). Þetta er auðvitað engan veginn víst og þyrfti miklu ítarlegri rannsóknar við en hér er unnt að gera, enda var það reyndar aldrei ætlunin. Hugsanlegt er einnig að önd-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.