Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Blaðsíða 112
118
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Kaupangssveit er bæjardyrabreiddin 2,5 álnir.21 Hvassafell er
50 hundraða jörð, Gröf 20 og Stórhamar 60. Engin hæð er gefin á
þessum stöðum. Leitum við hinsvegar aðeins fjær og norðar finnum
við hæð bæjardyranna á Böggvisstöðum í Svarfaðardal. Árið 1824
eru bæjardyr þar 4 álnir á lengd 2 álnir á breidd og 4% álnir á hæð.
Böggvisstaðir eru 25 hundraða jörð.25 Ef umreiknað er með íslenskri
alin, sem er 57 sm löng, þá er stærð dyranna þessi: Lengd 2,28 m,
breidd 1,14 m og hæð 2,57 m. Til gamans má geta þess, að bæjar-
dyrnar á Syðra-Skörðugili og Jaðri í Skagafirði eru sömu stærðar
árið 1938.20
Tekið er fram í öllum úttektum Stórhamars að hús sé ýmist fyrir
sunnan skála eða bæinn. Þetta er áreiðanlega geymsluhús. Skemma
er húsið sjálfsagt ekki kallað vegna þess að það hefur ekki timbur-
stafn. Það er sagt 8% alin á lengd og 4% á breidd eða 4,85X2,57 m.
Hæð er ekki heldur gefin hér en hún áætluð eftir sömu líkum og áður.
Tekið er fram að 5 þvertré séu yfir dyrum sem tekur af öll tvímæli
um það að húsið hefur ekki timburstafn. Veggþykkt er áætluð 2
álnir íslenskar eða 1,14 m, einnig að strengjatorf sé notað í veggi
(10. mynd). Hugsum okkur nú að við setjum „öndvegissúlur“ upp með
dyrunum á Stórhamri eða bæ á borð við hann og látum þær „rage
3 Alne over Taget“. Mér sýnist þá vera um tvo kosti að ræða: Miðar
Eggert þessar 3 álnir við skurðpunkt bjórs og „súlna“, eða ímynd-
aðan skurðpunkt sem fenginn væri með því að draga línu samsíða
jörðu um mæni?
Annað vafaatriði. Hvaða álnamál notar Eggert? Islenskt eða
danskt? Er ekki líklegra að hann noti danska alin þar sem hann
skrifar bók sína fyrir danska lesendur? Möguleg hæð „öndvegis-
súlna“ er þá þessi: Hafi Eggert notað íslenska alin ætti hæðin að
vera tæpir 4 m, sé miðað við skálínu bjórs, en um 4,60 ef miðað er
við mæni. Sömu stærðir yrðu með dönsku máli 4,17 m og 4,77 m.
Þegar hafa verið leiddar líkur að því að innstöplahæð yngri útbrota-
kirkna í Eyjafirði sé u. þ. b. 3,20 m, en þeirra eldri um 4 m og e. t. v.
meiri á klausturkirkjunni á Munkaþverá. Innstöplahæð annarrar
klausturkirkju er hins vegar kunn, þeirrar á Þingeyrum, en sú hæð
nemur 4,80 m.
VII
Um og eftir aldamótin 1700 eru útbrotakirkjurnar í Eyjafirði á
fallanda fæti. í vísitasíubók Jóns biskups Vigfússonar segir m. a.
svo um kirkjuna á Hrafnagili árið 1685: „Kirkjan sjálf af timbri