Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Page 14

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Page 14
18 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS býli í dalnum, stórbýlið Mýri, er 65 km frá Skjálfanda, en innar og austar uppi á hásléttunni eru Víðiker og Svartárkot enn í byggð. Bárðardalur er nú víða mjög blásinn, einkum austurhlíðarnar, en skógarkjarr er talsvert í vesturhlíðum innan til í dalnum. Skammt inn af Mýri fyllist dalurinn að mestu af Suðurárhrauni, sem er hluti af þeim mikla bruna sem talinn er líklega upprunninn í Trölladyngju og hefur flætt norður Bárðardal. Verða fossar þar sem Skjálfandafljót flæðir yfir hraunið og er þar þekktastur Aldeyjar- foss í sinni fögru stuðlabergsumgerð, en Ingvararfoss og Hrafna- bjargafoss eru sunnar. Innan við hraunið heldur dalur Skjálf- andafljóts áfram inn eftir öllu og heitir þar Krók(s)dalur. Sam- hliða þeim dal, vestar, er Mjóidalur, en norðan til á hálsinum milli þessara dala er dalverpi, Ishólsdalur, áður nefndur Rangárdalur, og verður fremst í því stöðuvatn, Ishólsvatn, 5 km langt. Allir ex*u þessir dalir óbyggðir nú og hafa verið síðan fyrir síðustu aldamót. Eitt býli var í byggð í hinum eiginlega Mjóadal á 19. öld, Mjóidalur, þar sem byggt var 1812 og hélst það býli til 1874. Þaðan fór Stephan G. til Vesturheims 1873. Býlið Ishóll sunnan Ishólsvatns fór í eyði 1897. Víkjum nú að þriggja daga ferð er ég fór á þessar slóðir í rniðjum ágústmánuði 1972, ásamt staðkunnugum ferðagai*pi og fi*óðleiks- manni, Jóni Sigurgeirssyni frá Helluvaði, Geirfinni syni lians og Sigrúnu dóttur Höskuldar bónda á Mýri. Farartækið var fjórtán ára rússajeppi Jóns, sem ég hafði ferðast með meira en áratug fyrr. Til- gangurinn með ferðinni var að átta sig á aldri eyðibýla. Á austurbakka Rangár, suður af Ishólsvatni, í um 370 m hæð yfir sjó, er eyðibýli. Um það segir í jarðabók Árna og Páls frá 1712: ,,Horngardur eður Hofgardur heitir fornt eyðiból hjer skamt fyrir framan, þar eru mikil garðalög og margar rústir, og atla menn, að þetta hafi stór jörð verið. Ekki má hjer aftur byggja, því túnið er að kalla alt viði vaxið“ (Jarðabók XI, 144). Daniel Bruun höfuðsmaður fór þarna um sumarið 1897 og er hér birtur uppdráttur hans af þessu eyðibýli (10. mynd). Er við Jón skoðuðum það þremur aldarfjórðungum síðar, var tiltölulega auðvelt að átta sig á tóttunum eftir uppdrætti Bruuns. Ég gróf þarna holu í tótt nr. 5 og mældi auk þess jarðvegssnið til saman- burðar í brekkunni austur og upp af bænum. Lítum fyrst á það snið (11. mynd). Efst rösklega 2 m lag af grófu foki og neðarlega í því þunnt, dökkt gjóskulag, er gæti verið úr gosi í Grímsvötnum 1619 eða gosi á Kverkfjallasvæðinu 1717. Þá kemur, efst í þriðja
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.