Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 55
SÁMSSTADIR f ÞJÓRSÁRDAL
59
IV Bæjarrústin.
1. Húsaskipan og megineinkcnni.
Leifar bæjarhúsanna á Sámsstöðum eru nokkrar sambyggðar húsa-
tóftir. Stærst þeirra er langhús sem liggur frá austri til vesturs,
skálatóft. Við vesturgafl hennar er önnur langhústóft nokkru minni
sem liggur eins, stofutóft. Við norðurvegg skálatóftar eru tvær
bakhústóftir, við austurendann hin minni, kamarstóft, og við vestur-
endann hin stærri, búrtóft. Þetta er hin klassíska húsaskipan Þjórs-
árdalsbæja sem Brynjúlfur frá Minna-Núpi var vel ljós. Húsaskipan
er hin sama í Stöng og í Áslákstungu innri.
Höfuðeinkenni þessarar húsaskipunar er hve löng bæjarhúsin eru.
Á Sámsstöðum eru t. d. skáli og stofa um 27 m að lengd með útveggj-
um, og ef útibúrið eða skemman við austurenda skálans er talin með
verður öll bæjarlengdin um 38 m. Er það mjög sambærilegt við Ás-
lákstungu innri, þar sem bæjarhúsin með skemmu virðast samkvæmt
teikningu Þorsteins Erlingssonar vera um 40 m að lengd.49 Einnig
er það svipað bæjarhúsum í Stöng sem munu vera um 30 m að lengd,
cn þar er ekki skemma við enda bæjarhúsanna.50 Athyglisvert er
að skálinn mun vera stærri bæði í Áslákstungu og Stöng en á Sáms-
stöðum, en stofan er hins vegar lengri á Sámsstöðum en á hinum
bæjunum.
Fjósið á Sámsstöðum er byggt spölkorn frá bæjarhúsunum, en
það er annað einkenni Þjórsárdalsbæja. Sámsstaðabærinn sver sig
því mjög í ætt annarra Þjórsárdalsbæja.
Ekki varð vart neinna túngarða eða þess háttar í grennd við Sáms-
staði. Hafi slíkt einhvern tíma verið þar er það nú líklega gjöreytt
af uppblæstri.
2. Byggingarefni.
Húsaleifarnar á Sámsstöðum eru einkum úr grjóti ofan úr hamra-
beltum múlans fyrir ofan bæinn. Er jafnvel hugsanlegt að grjót hafi
verið brotið þar til húsagerðarinnar og því velt niður á bæjarstæðið.
Þetta grjót er úr fornum basalthraunlögum og virðist sem það brotni
Þorsteinn Erlingsson 1899), bls. 34; málin á bls. 38 og 41 eru fjarri málum
teikntngarinnar og hljóta að vera prentvillur.
50 Roussell (1943 b), bls. 78, Fig. 37.