Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Síða 12
16
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
er í efra horni t.v., á borðanum við þessa mynd má lesa „sanctus iohanes".
I hægra horni að ofan er engill í fölbleikum kyrtli, er hann með gyllta vængi
og ljóst, brúnleitt hár, á borðanum stendur: „sanctus mateus". Loks er gert
í hægra horni að neðan vængjað, gyllt naut, þrátt fyrir skemmdir verða hér
greindir tveir bókstafir: „sa." Mánasigðar voru mjög vinsælar áður fyrr.
Tangarhaldið sem jómfrú María hefur á barninu og stellingar handleggja
hennar minna á franska hefð. Ekki verður annað sagt en þessi Maríumynd
sé með afbrigðum glæsileg. Eins og í hinum málverkunum fellur ljós hér
inn frá vinstri hlið.
Sumarið 1963 fékk Þjóðminjasafnið gagnlegt og uppörvandi bréf frá stofn-
un í Brussel sem helguð er rannsóknum á flæmskri list frá tímum hinna
frumstæðu málara sem svo eru nefndir. Ritar bréf þetta Micheline Sonkes,
vísindalegur samstarfsaðili við stofnunina. Fjallað er stuttlega um
málverkin á vængjum Ögurbríkar. Af þessari greinargerð verður að álykta
að þau eigi heima í list Niðurlanda, og bent er á að halda mætti vegna vissra
atriða að þau væru frá því snemma á 16. öld, eða nánar tiltekið frá um 1520.
Er sagt að höfundur vængjamyndanna virðist vera undir áhrifum frá Dirk
Bouts og Quentin Massys, og kynnu myndirnar að tengjast belgísku
borginni Louvain. Látið er í ljós að eitthvað í þeim eigi við svonefndan
meistara Morrisonbríkar. Kista Ögurtöflu er smíðuð úr eik, og segir
bréfritarinn að slíkar töflukistur séu nær allar flæmskar. Dirk Bouts og
Quentin Massys eru heimsfrægir málarar og skal vikið að þeim.
Dirk Bouts mun fæddur um 1415 og hann deyr 1474. Virðist sem hann sé
frá Haarlem, þ.e. Hollendingur, en hann starfaði lengi í Louvain, þar sem
hann var kjörinn borgarmálari árið 1468. Fyrra nafn hans er ritað með ýmsu
móti, sést rithátturinn Thierry, Dieric og Dirc, og einnig Dirk. Eins og fróðir
menn hafa tilgreint auðkennir list hollenskra málara einföld og beinskeytt
samlögun mynda, ágæt tónameðferð og mjög góð lýsing. A hinn bóginn
virðist sem fyrir verði meira þýðlyndi og ljóðræna ef skoðuð er málaralist
Flæmingja. Þeir eignast fyrr afburða málara en Hollendingar. Quentin
Massys (nafn hans sést öðru vísi ritað) var uppi frá 1466 til 1530 og fæddist
ef til vill í Louvain. Því er ekki að neita að málverk Ögurtöflu mega lítið eitt
hrjúf teljast og þau koma ekki frá hendi nafntogaðs meistara. í þeim má
greina þýskan þátt, ef að er gáð, og virðist sem flest verkin sem hægt er að
hafa til samanburðar í þýskri list séu nokkurn veginn frá sama tímabili, en
þar skortir nákvæma aldursákvörðun. Hin myndræna stefna í málverkum
töflunnar er niðurlensk, eins og Sonkes bendir á. Um leið gerir hér vart við
sig tjástefna (enska: expressionism), og kemur það vel fram í þrenn-
ingarmyndinni. Ekki víkur Micheline Sonkes að neinum tengslum við
þýska list í ofannefndu bréfi.