Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 13

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 13
ÖGURBRÍK 17 Svið okkar er að nokkru leyti Flæmingjaland. Var það greifadæmi sem afkomandi Karlamagnúsar keisara kom á fót og skipaði hann þar greifa Baldvin I (840-879). Flæmski greifinn Baldvin IX (1194-1204) setti á stofn latn- eska ríkið í Miklagarði. Hann mun hafa kynnt listir og handiðnir Austurlanda meðal vefara Flæmingjalands. Iðn þeirra blómgaðist snemma og varð heimsfræg. Málarar Niðurlanda áttu flæmskum vefurum margt upp að unna. Yfirráð Búrgúndhertoga og síðar Habsborgaraveldisins móta sögu Niðurlanda á síðmiðöldum. Hertogarnir sátu framan af í Dijon í Búrgúnd, en tóku upp aðsetur í hinum flæmsku löndum sínum árið 1419. Hirðmenning mun hafa verið nokkurt skjól niðurlenskum listamönnum, en líklega er þyngra á metunum að niðurlensk borgarmenning verður til á miðöldum og ýmsum borgum vex fiskur um hrygg. Fremstar ber að telja Gent, Brugge, Tournai, Brussel, Louvain, Amsterdam og Haarlem. A15. öld stóð málaralist Niðurlendinga með miklum blóma og kom frarn fjöldi meist- ara. Málað var með olíulitum á tré. Alitið er einnig að beitt hafi verið kvoðulitum (enska: tempera), sbr. Max Doerner, The Materials of the Artist, 1934. Mikil elja einkennir þessa list. Kröfum fjarvíddar var ekki fylgt til hlít- ar, en þeim mun meiri rækt lögð við smáatriði. Sjónarstaður í myndum var valinn hátt uppi. Mikið kveður að andlitsmyndagerð, sem er oft hreinlega frábær, jafnframt því sem málaður er fjöldi altarisbríka. Þótt listin þjónaði dyggilega trúnni, eins og verið hafði, ávannst henni nú nýtt, mannlegt inntak. Leikmenn gerðust kaupendur listaverka og sóttust þeir eftir altaris- bríkum. Hin gamla hefð Flæmingja í málaralist segir Erwin Panofsky að hafi myndast í borgunum Tournai, Brugge, Brussel og Louvain. Oft verður vart alveg sérstakrar færni í tréskurði Niðurlanda á þessu tímabili, en þar fer síð- ur fyrir því að kannaðar séu nýjar leiðir. Telja verður rnálara þá sem störfuðu á 15. öld til handverksmanna, og þeir voru yfirleitt í iðngildum. Með 16. öldinni leysist hin gamla skipan upp að vissu leyti, og menn laðast að þeim sem sýndu sjálfræði í háttum. Endurreisnarstíllinn ítalski gerði innreið sína á þessum tíma, einkum í Antverpen. Sú borg auðgaðist af verslun eftir fund sjóleiðarinnar til Indlands. Um sömu rnundir hnignaði hinni merkilegu borg Brúgge. All erfiðlega gekk Niðurlendingum að aðlagast endurreisnarstíln- um. Að þessum áhrifum verður komið síðar. Því miður hafa mörg listaverk 15. aldar á Niðurlöndum eyðilagst. Fátt hefur varðveist heimilda sem varpað gætu ljósi á innra líf þeirra sem feng- ust við listsköpun, á einkaviðhorf þeirra. Samt hefur í rauninni mikið varðveist af verkum. Má hér undrast margt, tryggðina við eðlilegt útlit, innvirðuna, skartgirnina, og ekki hvað síst hina næmu vettvangssýn. Sam- eiginlegir átthagar rnanna fá að njóta sín í málverkunum, og gætir í því efni
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.