Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Qupperneq 28
32
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hægra helmings bríkarinnar sé Jakob postuli yngri, en einkunn hans var
m.a. verkfæri eitt sem þófarar notuðu. Yst t.h. í þessari röð er hægt að þekkja
heilagan Andrés postula. Hann heldur á bók, en hinn x-laga kross hans er
gerður að baki honum. Yst t.h. í neðri röðinni er annar hvor postulanna,
heilagur Matthías eða heilagur Mattheus. Ekki virðist með öllu ólíklegt að
dýrlingurinn t.h. við heilagan Jakob af Compostella sé heilagur Pétur postuli.
Fleira þarfnast athugunar þar sem eru einstök atriði á töflunni. Vegna
englanna í mynd heilagrar þrenningar má hafa til samanburðar þrenndar-
brík frá Niðurrín, á Wallraf-Richartz-Museum í Köln, nr. 533. Aðalefni henn-
ar er Syrging Krists. Svo virðist sem bríkin geti verið verk málara í Niðurrín-
arhéraðinu, og málarinn undir áhrifum úr vestri og þó einkum undir áhrif-
um frá Niðurlöndum. Brík þessi hefur verið haldin gerð á öðrum fjórðungi
15. aldar. Sbr. Kataloge des Wallraf-Richartz Museums, Köln, 1969.
Málaralist Flæmingja orkaði á listsköpun Vestur-Evrópu, einkum þar
sem þýska var töluð, en lét ekki síður að sér kveða á Spáni og í Portúgal.
Peter og Linda Murray segja beinlínis að skoðunarháttur á íberíska skagan-
um hafi verið flæmskur á fyrra hluta 15. aldar. Bent er á að flæmsk list hafi
einkum skotið rótum í Kastilíu, og Paul Guinard segir verk van Eycks, Dirk
Bouts og van der Weydens hafa notið vinsælda í þessum landshluta öllum.
Málverkin fjögur í Ögurtöflu markast eiginlega ekki mjög af hinum
raunsæislegu lýsingum á grundvelli fjarvíddar sem einkenna ítalska list
endurreisnartímans. Þessi málverk í bríkinni eru í rauninni vitnisburður
um hina táknrænu afstöðu sem gegnsýrði menningu miðalda. Italska stefn-
an var þó farin að hafa áhrif á Niðurlöndum áður en vængmyndir Ögur-
töflu voru gerðar, og minnst hefur verið á fægistílinn. Er talið að hins ítalska
raunsæis gæti í hollenskri list þegar við miðbik 15. aldar og nokkru seinna.
Er þá tekið til frægt málverk eftir Albert van Ouwater (sem starfaði frá um
1450 til 1480), Lasarus vakinn frá dauðum, frá um 1485. Verulegum áfanga
var náð að þessu leyti með málverkinu Skírn Krists eftir Jan van Scorel
(1495-1562). í því ríkir ítalskur fornmenntaandi.
Ritaskrá
Blum, Shirley Neilsen, 1969. Early Netherlandish Triptychs.
Dupont, Jaques and Cesare Gnudi, 1956. Gothic Painting.
Friedlander, Max ]., 1937. Die altniederlándische Malerei, 14. bindi.
Friedlánder, Max ]., 1956. From Van Eyck to Bruegel.
Fuchs, R.H., 1978. Dutch Painting.
Gersemar og þarfaþing. Afmælisrit Þjóðminjasafns, 1994.
Hibbard, Howard, 1980. The Metropolitan Museum of Art.
Jordan, R. Furneaux, 1969. Western Architecture.
König, Wieland, 1974. Studien zum Meister von Liesborn.