Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 33
RÚTSHELLIR
37
og rás er meðfram suðurvegg en halli þeirra er ekki eins jafn og norðan
megin og þar er gólfið heldur ekki eins slétt.
Utarlega í hellinum eru þrjár kringlóttar holur, eins og eftir stoðir í gólf-
inu. Stærsta holan er 15 cm djúp þar sem hún er dýpst og önnur við hlið
hennar 12 cm en sú þriðja, sem er út undir norðurvegg, er örgrunn (2. mynd).
Loftið er mun sléttara og jafnara en gólfið með fínum höggförum í berg-
inu sem sýna að nostursamlega hefur verið að verki staðið er hellirinn var
gerður. Loftið er hvelft og bogamyndað innan til en ysti hlutinn er flatur og
bungar á kafla lítið eitt niður á við. Innarlega er sporöskjulaga op í miðri
hvelfingunni sem gengur upp í Stúkuhellinn. Það er 50x80 cm að stærð og
bergþykktin í því er 40 cm. Loftinu hallar upp á við frá munna líkt og gólf-
inu. Innan við opið á hvelfingunni lækkar það þó og hallar í andstæða átt á
kafla en heldur svo áfram sama halla og fyrr inn að gafli. Ysta lag bergsins,
veðrunarhúðin, er Ijósbrún með hvítum yrjum og hún þekur hellinn að
mestu að innan. Ut við munnann taka veggirnir lit af grænleitum þörunga-
gróðri og mosa og þar vex tófugras niður úr rjáfrinu. Smágöt hafa dottið í
veðrunarhúðina á stöku stað, einkum meðfram mjórri sprungu sem skásker
innsta hluta hvelfingarinnar, og þar sér í dökkleitt ferskt móberg undir.
Veggirnir, sem upphaflega hafa verið slétthöggnir líkt og loftið, eru sett-
ir ótal holum, hillum ogberghöldum. Holurnar eru ýmist nokkuð hringlaga
eða aflangar upp og niður. Einnig sjást ferstrend bitaför. För eins og eftir
skilrúm eru á veggjunum 4,5 m innan við munna (miðað við neðsta þrep)
óljós þó. För eftir einhvers konar skilrúm eða milliveggi sjást víðar en hvergi
annars staðar má rekja þau þvert yfir hellinn. Inn undir hellisgafli, 10-15 cm
frá vegg, eru lóðréttar grópir báðum megin niðri við gólfið, líkt og þar hefði
verið timburverk fyrir gaflinum.
Berghöld eru í tugatali um alla veggi, samtals eru þau um 100 (4. mynd).
Þau eru af ýmsum stærðum, sum brotin, önnur ófullgerð. Sum eru sterkleg
og þola mikið átak, önnur veikbyggð. Þau eru oftast þannig gerð að boraðar
hafa verið tvær samsíða holur í vegginn og síðan sorfið út gat á milli þeirra
í botninn. Berghöldin eru ýmist lóðrétt, lárétt eða skásett. Óvandaður kross
er fyrir gafli. Engar áletranir eru á veggjum.
Munni inn í Stúkuhellinn er innarlega í hellinum. Gólfið í Stúkunni er 1,1
m hærra en gólf Aðalhellis. Tvö illa gerð þrep eru á veggnum neðan við
munnann.
Uppmæling á Stúkuhelli
Stúkuhellirinn eða Stúkan er falleg smíð. Inngangurinn að utan er frern-
ur lágur, sveigmyndaður efst en neðri hluti hans sést ekki fyrir hleðslu sem
þar er. Frá inngangi eykst lofthæðin upp í 3,5 m háa hvelfingu (2. og 3.