Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Síða 36

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Síða 36
40 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS skilinn eftir 25 cm hár móbergspallur þegar hellirinn var höggvinn út. Hann er í grófum dráttum þríhyrningslaga og stendur topphorn þríhyrningsins út á gólfið, út á móts við holurnar, en grunnlína hans er samgróin veggnum (2. mynd). Um 30 cm frá horni steinsins er ferningslaga bolli höggvinn í hann 9x9 cm, dýpi 8-9 cm. Skarð er í barm hans. Fyrir miðri innri brún steinsins er berghald. Enginn strompur er á Stúkunni enda margra metra þykkt berg í þaki. Tengsl Stúku og Aðalhellis Þótt ekki sé neinn aldursmun að sjá á Stúku og Aðalhelli hefur hún verið höggvin á eftir honum. Hún gengur hornrétt á hann innanverðan og mó- bergsveggurinn sem skilur þau að er einungis 10-15 cm þykkur við munn- ann. Tvö göt eru milli hellanna. Annað er upp í gegn um loftið og upp um rúmbotninn en hitt á miðjum vegg Aðalhellis og nemur neðri brún þess við gólfið í Stúkunni. Þessi munni er óreglulegur að lögun og líkist því meir að hafa opnast fyrir slysni en að hafa verið höggvinn af ásettu ráði. Þó verður að teljast ólíklegt að hellarnir hafi verið aðskildir í upphafi vega. I fyrsta lagi er ekki hægt að sjá neinn ávinning í því, heldur einugis óhagræði, og í öðru lagi hefði þurft mikla og nákvæma mælitækni til að höggva Stúkuna þann- ig út að einungis örþunnur milliveggur yrði eftir milli hennar og Aðalhellis bæði í gafli og í rúmbotni. Eðlilegast er að gera ráð fyrir að gat hafi verið gert á milli hellanna strax í upphafi þó ekki væri til annars en að sjá hversu langt væri óhætt að höggva. Samanburður við fyrri mælingar Eitt vekur strax athygli þegar þessi uppmæling Rútshellis er borin saman við mælingu Eggerts og Bjarna frá 1756 og mælingu sr. Ólafs Pálssonar frá 1818. Þeim mælist hann styttri. Eggert og Bjarni segja hann 24 álnir að lengd. Mælieining þeirra var Hamborgaralin sem var 57,1 cm. Þar af leiðir: 14 al. x 0,571 m = 13,2 m. Ólafur mælir hann 21 alin en á hans tímum not- uðu menn danska alin sem var 63,8 cm. Þetta gerir: 21 al. x 0,638 m = 13,7 m. Þessum tveimur mælingum ber vel saman, mismunur þeirra er innan eðlilegra marka. Nú mælist hellirinn 16,3 m. Engar vísbendingar er að sjá um að hellirinn hafi verið lengdur frá því að eldri mælingarnar voru gerðar. Veðrunarhúð og öll áferð á veggjum bendir ekki til annars en Aðalhellirinn sé höggvinn út í einu lagi og hafi ekki verið breytt síðan. Hvort Stúkan sé jafn gömul eða yngri er hins vegar óvíst. Þegar hin ágæta lýsing Ólafs Páls- sonar er lesin vandlega kemur líka í ljós hvernig á mismuninum stendur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.