Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 46

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 46
50 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS in á einn stað í heiminum hvað yfirgripsmest þekking á Egyptalandi hinu forna að Þjóðminjasafninu í Kaíró frátöldu. Þar náðist samband við aðstoð- arsafnvörð egypsku deildarinnar, dr. M. L. Bierbrier, sem reyndist fús til að veita aðstoð. Nú voru egypsku deildinni á British Museum sendar myndir og lýsingar á þeim munum sem talið var að væru egypskir auk þess sem undirritaður gerði grein fyrir niðurstöðum sínum. Það er skemmst frá því að segja að skömmu síðar barst bréf frá dr. Bierbrier með niðurstöðum safns- ins. Þeim var því næst bætt inní það sem unnið hafði verið upp úr skrá As- mundar Brekkan og síðari athugunum. Við þessi skrif hef ég notið mikilvægrar aðstoðar Lilju Árnadóttur safn- stjóra Þjóðminjasafns, Ivars Brynjólfssonar ljósmyndara og Kristínar Sig- urðardóttur forvarðar, sem gerði lauslega bráðabirgðaathugun á málmhlut- unum í safninu. Öll eiga þau þakkir skilið svo og Mjöll Snæsdóttir ritstjóri Árbókarinnar fyrir sitt framlag. Auk þess veitti Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, höfundi styrk til að vinna að þessari rannsókn. Fiskesafnið og tilurð þess Dánargjöf Willards Fiske kom til landsins í tveim hlutum. Árið 1897 bár- ust Forngripasafninu nokkrar litlar gifsafsteypur af egypskum lágmyndum en meginhluti safnsins kom svo til landsins árið 1909, nokkrum árum eftir dauða Fiske og getur Matthías Þórðarson þess sérstaklega í Árbók Forn- leifafélagsins 1910 og gerði stuttlega grein fyrir gripunum. Ekki lentu þó all- ir fornmunirnir úr safni Fiske á Þjóðminjasafninu því á minnisblaði sem fest var við síðustu erfðaskrá hans var umsjónarmaður dánarbúsins beðinn um að velja ákveðna gripi sem áttu að fara til Psi Upsilon félagsins og Michele Monzecchi auk þeirra gripa sem áttu að fara til Reykjavíkur.1 En hvernig áskotnuðust Fiske þessir gripir? Dr. Willard Fiske var ekki bara Islandsvinur heldur einnig mikill áhugamaður um egypska menningu jafnt forna sem nýja og gerði meðal annars tilraun til að búa til ritmál með latínuletri fyrir nútíma egypsku en Egyptar reyndust hins vegar áhugalitlir um það mál. Fiske kom oft til Egyptalands. í fyrsta skipti kom hann þangað 1867-1868 en þá var hann leiðbeinandi ungs manns á ferðalagi hans um fornminjar og söguslóðir Egyptalands. Árin 1880-1881 fóru Fiske og kona hans, Jennie McGraw, þangað í brúðkaupsferð og veturinn 1888-1889 dvaldist hann þar með vini sínum Andrew D. White. Árið eftir kom Fiske svo aftur til Egyptalands en síðustu ferðirnar þangað fór hann veturna 1896-1897 og 1897-1898. í ævisögu Fiske segir Horatio S. White prófessor og eftirmaður hans að hann hafi safnað mikum fjölda egypskra fornmuna, bæði skartgripum og verndargripum sem hann kallar „scarabe". Hann hafi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.