Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Page 48

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Page 48
52 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS aldur þeirra og spurði vin sinn Halldór Hermannsson þar um svaraði Halldór: „Þú spyrð mig hverjum og hvernig steinar Fiske's og aðrir merk- isgripir voru sendir, er samkvæmt erfðaskrá hans áttu að fara til Islands. Þegar eg kom sunnan frá Italíu vorið 1905 hafði eg með mér samkvæmt beiðni prófessors Whites nokkra egypska steina og merkisgripi til íslenzku stjórnarinnar. Eg afhenti Olafi Halldórssyni sem umboðsmanni stjórnar- innar í Khöfn gripi þessa og tók kvittun hans fyrir og lofaði hann að koma þeim heim til Islands með skilum. Heyrði eg svo ekki um þá meira. En fyrir hér um bil tveimur árum skrifaði próf. White mér og kvaðst enga viðurkenn- ingu hafa fengið frá íslenzku stjórninni fyrir gripum þessum, en hann óskaði eptir að fá hana. Eg skýrði honum frá málavöxtum og skrifaði jafn- framt ráðherra Islands og bað hann að senda White viðurkenningu fyrir móttöku þessara gripa, sem eg taldi sjálfsagt, að honum hefðu verið afhent- ir frá stjórnarskrifstofunni í Kaupm.höfn. White hefur ekki minst frekar á þetta við mig og taldi eg því víst, að hann hefði fengið viðurkenningu frá ráðherranum. En spurning þín kemur mér skringilega fyrir, því að það er eins og þessir munir væru ekki á Forngripasafninu, en þar ættu þeir auðvit- að að vera. En þetta eru allar upplýsingarnar sem eg get gefið þér þessu viðvíkjandi, en láttu mig heyra um hvernig í þessu liggur."5 Orð Halldórs um egypska steina virðast hafa ruglað menn í ríminu því sú lýsing er fjarri því að eiga við þá gripi sem eru á Þjóðminjasafninu. Málið leystist þó farsællega því misskilningurinn virðist hafa stafað annars vegar af ónákvæmu orðalagi Halldórs og hins vegar af því að hann sá aldrei gjöf- ina í heild sinni því að White sendi sumt af stað áður en Halldór kom til Flórens en annað eftir að hann fór frá borginni.6 Þann 24. apríl 1909 skrifaði Halldór svo aftur: „Kæri vinur, Þökk fyrir bréf þitt. Mér þótti gott að heyra, að munir þeir, er eg hafði meðferðis frá Flórens til Khafnar komust með skilum á Forngripasafnið..." Síðan ræðir hann nokkuð um gjöfina og hvernig best sé að koma henni fyrir. „Eg er þér og sammála um það, að helst ætti gjöf Fiske's að vera í einu og sama herbergi eða í sama húsi, því að bæði er það, að á þann veg er minning gjafar hans bezt geymd og líka hvetur það aðra menn til líkra gjafa,..."7 Hvað varðar beiðni Matthíasar um upplýsingar um gripina svaraði Hall- dór: „Að því er snertir upplýsingar um munina, þá er eg hræddur um að ekki muni auðvelt að útvega þær. Númerin, sem þú sérð á þeim hafa enga þýðingu í því efni; þau voru límd á þá, þegar próf. White tók inventarium á eignum Fiskes og voru því einungis executorebus til leiðbeiningar. En sjálfur skrifaði Fiske ekki hjá sér neinar upplýsingar um þá muni, er hann keypti og tel ég víst, að ekkert finnist þessum munum, sem til íslands fóru, viðvíkjandi meðal bréfa hans eða minnisbóka. Þó skal ég spyrjast fyrir um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.