Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Síða 50
54
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Frá 1085 f.Kr.-712 f.Kr. er svo þriðja upplausnartímabilið en aldirnar frá
712 f.Kr.-332 f.Kr. eru gjarnan kallaðar síðkonungdæmið, en þá réðu meðal
annarra Persakonungar Egyptalandi um skeið.
Arið 332 f.Kr. hófst það tímabil í sögu landsins sem kennt er við Ptólemaí-
ættina grísku og hellenismann. Síðasti faraó af þeirri ætt, sú hin fræga Kleó-
patra, fyrirfór sér árið 30 f.Kr. og þar með hófst rómverska tímabilið í sögu
Egyptalands.
Veigamiklar breytingar urðu á list Egypta við upphaf nýríkisins. Ein-
staklingsbundinn smekkur listamannanna fékk betur að njóta sín en áður
tíðkaðist, litagleði er meiri og gripirnir frjálslegri og líflegri. Aðferðir og form
urðu fjölbreyttari. Listaverkin eru gerð af metnaðarfullum listamönnum
sem gerðu fagurfræðilegar kröfur og settu listrænan metnað í fyrirrúm.
Margir telja að á tímum nýríkisins hafi egypsk list náð hvað mestum þroska
en þegar líður á síðkonungdæmið má greina ýmis merki hnignunar og úr-
kynjunar.
Skrá yfir egypsku munina í safni dr. Willard Fiske
Rétt er að byrja á því að líta á gifsafsteypurnar af egypskum lágmyndum,
sem Fiske sendi hingað árið 1897. Ekkert er vitað um þessar afsteypur og
ekki hefur tekist að bera kennsl á upphaflegu verkin. Líklega eru þetta minja-
gripir sem Fiske hefur keypt á ferðum sínum.
1. Gifsafsteypa af lágmynd úr gröf frá tímum fornríkisins, líklega frá Giza
eða Saqqara en að öðru leyti óþekkt. Lágmyndin sýnir fólk við dagleg störf,
einkum eldamennsku og matargerð (bakstur?). Gifsafsteypan er ofurlítið
rauðleit. Hún er 24 cm að lengd, 11 cm að breidd og 1,3 cm að þykkt.
2. Gifsafsteypa af óþekktri lágmynd úr gröf frá tímum fornríkisins, sjöttu
konungsætt, líklega frá Giza eða Saqqara með ýmsum helgitáknum og
myndletri, 20,2 cm að lengd, 10,7 cm að breidd og 0,7 cm að þykkt.
3. Gifsafsteypa sem sýnir tvær sitjandi mannverur andspænis hvor ann-
arri. Fyrir framan þær eru fórnarstallar. A plötunni er og myndletur og ýmis
helgitákn. Þetta mun vera áletrun frá Þótmesis I (1525-1512 f.Kr.) af 18. kon-
ungsætt. Platan er 18 cm að lengd, 9,5 að breidd og 0,5 að þykkt. Hún hefur
einhvern tíma brotnað í tvennt og verið límd saman.
4. Gifsafsteypa af óþekktri minningartöflu frá tímum Ptólemaíættarinnar
eða rómverskum tíma. Hún er bogadregin að ofan og sýnir hinn dauða
færa tveim guðum fórnir. Annar er líklega Hórus með fálkahöfuðið og tvö-
földu kórónuna,11 en hinn guðinn ber rauðu kórónuna. Auk þessara mynda
er á töflunni langur texti með myndletri. 19,4 cm að lengd. 12,6 að breidd,
0,7 að þykkt. Taflan hefur brotnað í þrjá hluta og er límd saman. A minning-