Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Síða 63
EGYPSKU MUNIRNIR í DÁNARGJÖF WILLARDS FISKE
67
44. Fálkahöfuð með sóldisk og bláum glerungi. Það er því sem næst eins
og 43 nema hvað það er dálítið skreytt með upphleypum strikum, 2,5 cm að
hæð. Höfuðið táknar annað hvort Hórus eða Re. Þessi tvö fálkahöfuð gætu
hafa verið hluti af hálsfesti sem múmían bar.
Nr. 45-48 eru styttur af hinum fjórum sonum Hórusar. Innyflakrukkurn-
ar, sem innyflin úr múmíunum voru geymd í, báru oft mynd þeirra enda
gætti hver síns innyflis. A tímum 21. konungsættar fór að tíðkast að láta inn-
yflin aftur inn í múmíurnar þegar búið var að meðhöndla þau. Þá var gjarn-
an smástyttum af þeim bræðrum pakkað með innyflunum. Þetta gætu vís-
ast verið slíkar styttur.
45. Stytta af Duamutef. Hann var með sjakalahöfuð og gætti magans.
Styttan er 4,6 cm að hæð með bláum glerungi.
46. Stytta af Hapi. Hann er með apahöfuð og gætti lungnanna. Styttan er
með grænleitum glerungi og að öllu leyti af sömu gerð og nr. 45. Hún er 4,4
cm að hæð.
47. Stytta af Imsety en hann gætti lifrarinnar. Imsety hafði mannshöfuð.
Styttan er með grænleitum glerungi, 4,5 cm að hæð.
48. Stytta af Qebhsenuef. Hann hafði fálkahöfuð og gætti garnanna.
Styttan er með grænleitum glerungi, 4,6 cm að hæð.
49. Hjartatáknið ab með blágráum glerungi, 2,1 cm að hæð. Hjartað er
belgmyndað með ofurlitlum eyrum og loki á báðum hliðum. I hliðina er
grafið tákn líkt og skeifa í laginu.
50. Djedsúla með grænleitum glerungi. Djedsúlan táknar hrygginn í Osíris
og er tákn stöðugleika og þess er holdið breytist í anda. Hún er 2,5 cm að hæð.
Skartgripina númer 51-56 er mjög erfitt að aldursgreina án nákvæmrar
rannsóknar. Margar af þeim perlum og skarti sem hér getur að líta voru
framleiddar öldum saman og einnig tíðkaðist að bæta gömlum perlum inn
í nýrri skartgripi. Sumir gripanna gætu því verið frá mörgum tímabilum,
elstu perlurnar allt frá tímum Miðríkisins en annað miklu yngra.
51. Fremur grófgert steinasörvi. Perlurnar eru úr leir, hnöttóttar í ýmsum
litum. Mest ber á bláum og grænleitum perlum. Sörvið er 76 cm á lengd.
Gæti verið hvaðan sem er og mjög erfitt er að aldursgreina gripinn ná-
kvæmlega án vandlegrar rannsóknar á sjálfri festinni.
52. Fremur grófgert steinasörvi. Perlurnar eru aðallega úr gleri. Önnur
hver er aflöng, úr kornskum rauðsteini24 og köntuð um 1,6 cm á lengd en
hin er lítill grænbláleitur sívalningur úr leir. Sörvið er 52 cm að lengd. Svona
festar voru framleiddar mjög lengi og því gæti hún verið frá tímum Miðrík-
isins en einnig talsvert yngri.
53. Steinasörvi saman sett úr fjölda grænblárra smásívalninga úr leir. Sí-
valningarnir liggja hlið við hlið og niður úr þeim kemur síðan kögur úr