Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Qupperneq 73
UM HEKL Á ÍSLANDI
77
steð; kann þó að vera útlend að gerð og uppruna."20 Pyngjur með þessu
sniði, ýmist heklaðar eða prjónaðar tíðkuðust erlendis á 19. öld,21 og er enda
önnur slík, prjónuð og með tveimur silfurhringum, meðal gripa úr dánar-
búi frú Þóru í safninu.22
Prentaðar fyrirsagnir um hekl á íslensku
Arið 1886 kom út fyrsta íslenska hannyrðabókin í samantekt Þóru, dóttur
Péturs Péturssonar biskups og systranna Jarðþrúðar og Þóru, dætra Jóns
Péturssonar háyfirdómara. I henni er löng og ítarleg fyrirsögn um hekl; er
upphaf hennar á þessa leið:
Hekl er nauðsynlegt að kunna, og
rná hekla ýmsan gagnlegan fatnað
bæði með innlendu og útlendu bandi.
Einnig má hekla ýmsa hluti til gagns
og prýðis með hvítum eða mislitum
tvinna eða „ankergarni", en svo að
konur verði leiknar í hekli er bezt, að
þær læri það sem yngstar.
Heklunál og tvinni sá eða band,
sem ætlað er í hekl, verður að sam-
svara hvort öðru, svo að heklið verði
hvorki of laust nje of fast. Nál sú, er
heklað er með, er með krók á öðrum
enda; henni er haldið í hægri hendi
með þumalfingri, vísifingri og löngu-
töng, líkt og penna. Þegar hekiað er,
má nálin eigi snúast í hendinni, og ber þess að gæta, að krókurinn viti jafn-
an að þumalfingri, því að þá er auðveldara að liekla. Tvinninn er í vinstri
hendi, og honum er haldið með þumalfingri og vísifingri; honum er brugð-
ið um vísifingur og lagður undir löngutöng, en yfir baugfingur og litlafing-
2. mynd. Nokkrir af þeim fimmtíu upp-
dráttum af hekli sem birtust í fyrstu ís-
lensku hannyrðabókinni er út kom 1886.
Þeir virðast allirfengnir úr erlcndum hann-
yrðaritum, og eru blúndur og millibekkir í
miklum meirihluta. - Some of the fifty
designs for crocheting published in 1886
in thefirst lcelandic book on needlework.
3. mynd. Prjónaðar og heklaðar handstúkur
(smokkar) úr rauðleitu, hvítu og Ijósbláu
ullargarni. í Þjóðminjasafni íslands, skráðir í
safnið 31.12.1876. Uppruni óviss. Lengd 8,5
cm, þvermál um 5 cm. Þjms. 1151. Ljósmynd:
Halldóra Asgeirsdóttir 1984. - Knitted and
crocheted wrist warmers worked in reddish,
white and light blue woollen yarn. Foreign
design, origin unknown. In the National
Museutn of lceland