Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 122

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 122
126 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Ég vil í þessu sambandi benda henni á skilgreiningu á hugtakinu human ecology í bókinni The Tontana Dictionary ofModern Thought (Ed. by A. Bullock and O. Stallybrass. Suffolk 1977). Þar hljóðar skilgreining á eftirfarandi hátt: „An extension of zoological and botanical ECOLOGY to include man. The growth ofhuman ecology is usually associated with sociological writing in the U.S.A. in the 1920s; it has since been widely adopted in a number ofother SOCIAL SCIENCES. For each discipline, the distinctive character of ecological studies is the attempt to link the structure and organization ofa human community to interactions with its localized ENVIRONMENT." (Bls. 187). Að auki get ég bent Guðrúnu á greinina „Ecosystem Analogies in Cultural Ecology" eftir J.W. Bennet í bókinni „Population, Ecology, and Social Evolution" (Chicago 1975) og bókina „Archaeology as human ecology. Method and theoryfor a contextual approach” eftir K.W. Butzer (Cambridge 1982). Titlarnir tala strax skýru máli. Fleiri dæmi getur hún fundið í heimildaskrá minni og kafla 1.3 Ecological archaeology, í bók minni. Ég get ómögulega verið sammála þeirri staðhæfingu Guðrúnar, að heitið heritage gefi í skyn arf sem þarf að varðveita. Arf þarf ekki að varðveita, hann er varðveittur meðvitað eða ómeðvitað og um slíkan arf fjallar bók mín að hluta. Þá er það ekki rétt hjá Guðrúnu að fyrsti hluti fjalli aðeins um landafræði, loftslag og gróður. Ef hún les betur sér hún að einnig er fjallað urn jarðfræði, dýrafræði, veðurfræði, eðlisfræði o. fl. og er það gert í lok fyrsta hluta, 2. kafla. Hins vegar er þetta ekki aðalatriðið, heldur hitt, að fjallað er um vist- fræði (ecology), bæði þá sem lýtur að náttúruvísindum og þá sem lýtur að því hvernig manneskjan túlkar og skynjar umhverfi sitt. Við getum jafnvel sagt að það sé vistfræði mannshugans, þar sem hinn vistfræðilegi arfur er borinn áfram í formi tæknikunnáttu, þekkingar, hugmynda, hindurvitna, trúarbragða o. s. frv. Til áréttingar bendi ég á að fyrsti kafli fyrsta hluta fjallar m. a. urn vist- fræðilega fornleifafræði (kafli 1.3), aðlögun (kafli 1.4), skynjun (kafli 1.5) og að lokum hinn vistfræðilega arf (kafli 1.6). Síðastnefnda heitið hefur vissulega ekki mér vitanlega verið notað áður í fornleifafræði, en það er rökrétt afleiðing umræðu minnar í fyrri köflurn bókarinnar. Fræðiheiti eru sem betur fer ekki verri þó að þau séu ný - þá væru vísindin í vondum málum! Um skreytingar, Landnámu og kuml Um annan hluta bókarinnar, sem fjallar um kuml á Islandi, segir Guðrún að hann sé skýrt dæmi um yfirborðslega og ónákvæma heimildanotkun, auk óvissunnar um hver eiginleg afstaða mín sé.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.