Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 135
ÁRSSKÝRSLA 1995
139
Magnússonar. Voru sérsöfn færð í geymsluna og er þeirra fyrirferðamest Ásbúðarsafn en sam-
fara flutningi er farið ítarlega yfir skrár safnanna. Þessir starfsmenn önnuðust einnig aliar
framkvæmdir í geymslunni og er þar afar góð regla á gripum en aðkoma er afar slæm að
geymslunni og þarf að leita til Samskipa um allan þungaflutning þangað og þaðan.
Utlán safngripa á sýningar innan lands og utan
Sífellt færist í aukana að önnur söfn og stofnanir fái muni lánaða úr Þjóðminjasafni til sýn-
ingar. Á árinu voru fjórir hlutir úr safninu á sýningu í Borgarminjasafni Stokkhólms um rúnir
og rúnaletur.
Hluti sýningarinnar „Leiðin til lýðveldis" var sett upp í Safnahúsinu á Sauðárkróki í júní.
Nokkrir starfsmenn Þjóðskjalasafns Islands dvöldust á Sauðárkróki við uppsetningu hennar
auk safnstjóra en Sigríður Sigurðardóttir frá Byggðasafni Skagfirðinga vann einnig að uppsetn-
ingu.
Byggðasafn Hafnarfjarðar fékk að láni muni úr Norska safninu á sýningu í Smiðjunni sem
haldin var um sumarið. Byggðasafn Borgarfjarðar fékk að láni prentmót úr Beitistaða- og Leir-
árgarðaprentsmiðjum á sýningu um prentiðn sem sett var upp í Borgarnesi.
Hið íslenska byssuvinafélag hélt sýningu í Laugardalshöll í október og fékk nokkrar gaml-
ar byssur úr safninu að láni á sýninguna.
Fundur þjóðminjavarða Norðurlanda var haldinn í Borgarnesi 18. og 19. maí. Sóttu hann
auk þjóðminjavarða aðstoðarmenn þeirra. Af Islands hálfu sóttu hann auk þjóðminjavarðar
Guðmundur L. Hafsteinsson og Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson frá Þjóðminjasafni, einnig að
hluta Þórunn Hafstein deildarstjóri í menntamálaráðuneyti og Helgi Þorláksson frá þjóðminja-
ráði. Eftir fundinn var farin kynningarferð um Snæfellsnes og bauð Stykkishólmsbær þátttak-
endum til kvöldverðar. Var og farið að Þingvöllum, Gullfossi og Geysi.
Hafin var vinna við stefnumörkun Þjóðminjasafns og þjóðminjavörzlunnar og var Run-
ólfur Smári Steinþórsson dósent við Háskóla Islands fenginn til að stýra verkinu en starfsmenn
taka þátt í því eftir föngum jafnframt því sem þjóðminjaráð hefur mikið fjallað um stefnumót-
unina.
Menntamálaráðherra ákvað, að Þórhallur Vilmundarson, sem hefur verið forstöðumaður
Örnefnastofnunar Þjóðminjasafns frá upphafi, skyldi veita henni forstöðu áfram til miðs árs
1997.
Farskóli safnmanna var haldinn á Akureyri 6.-9. september og sóttu hann ýmsir starfsmenn
Þjóðminjasafns og starfsmenn flestra byggða- og minjasafna landsins.
Safnstjóri á sæti í undirbúningsnefnd um sýningu um Margréti 1. Danadrottningu og Kalmar-
sambandið sem haldin verður í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi 1997-1998, til skiptis í
löndunum. Sýningin verður kostuð af Norræna menningarmálasjóðnum og Norrænu ráðherra-
nefndinni en Þjóðminjasafn Dana annast gerð hennar að öllu leyti.
í undirbúningi er sýning um kirkjur og kirkjulist á miðöldum í Noregi og á íslandi. Norsk-
íslenski menningarsjóðurinn leggur fé til hennar auk fleiri verkefna í tilefni af 50 ára afmæli
lýðveldisins. Undirbúningur hennar er í höndum Norsk Institutt for Kulturminneforskning og
Þjóðminjasafns íslands og eiga Þóra Kristjánsdóttir, Þór Magnússon og Lilja Árnadóttir sæti í
undirbúningsnefnd af íslands hálfu en Ola Storsletten, Erla Hohler og Ketil Kiran fyrir hönd
Norðmanna. Sýningin verður opnuð fyrst á Islandi vorið 1997 og eftir það á að minnsta kosti
þremur stöðum í Noregi. Þóra sótti námsstefnu í Björgvin af þessu tilefni 24.-25. janúar.
Að venju fóru þjóðminjavörður og aðrir starfsmenn margar ferðir innanlands margvíslegra
erinda í þágu safnsins og þjóðminjavörzlunnar, margar einnig vegna byggða- og minjasafna.
Ekki verða þær taldar hér en sumra hinna helztu er getið í umfjöllun um deildir. Skal þó nefnt,
að Sturla Böðvarsson formaður þjóðminjaráðs og þjóðminjavörður heimsóttu söfn og ýmsa
minjastaði á Suður-, Austur- og Norðurlandi 2.-6. júlí. Áttu þeir viðræður og fundi víða með
ráðamönnum safnanna.
Þóra Kristjánsdóttir skráði ásamt Margréti Gísladóttur kirkjugripi í 7 kirkjum í Árnessýslu
og víðar.