Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Síða 143
ÁRSSKÝRSLA 1995
147
Veggir og þak Nesstofu á Seltjarnarnesi voru máluð og annaðist Kristján Guðlaugsson það verk.
Sjóminjasafn. Hinn 31. ágúst lét Jón Allansson fil. kand., sem verið hafði safnvörður frá 1.
nóv. 1992, af störfum en Agúst Georgsson fil. kand. tók við frá 1. sept. Jón vann þó áfram til
ársloka að gerð skýrslu um gamla báta sem til eru í landinu, í söfnum en þó einkum annars
staðar og hverjum þeirra mætti bjarga til safna.
Safnið var opið alla daga yfir sumarið og um helgar að vetrinum kl. 13-17. Safngestir urðu
samtals 3652 á árinu, nær helmingur útlendingar. Skólanemar urðu alls 967.
Alls bárust 144 gripir til safnsins á árinu og að auki 22 myndir, teikningar og skjöl. Má nefna
vatnslitamynd af nýsköpunartogaranum Garðari Þorsteinssyni og leguundirlag úr togaranum
Coot, fyrsta togara Islendinga. Mun þetta eini hlutur til úr honum. - Safninu bjóðast ýmsir úr-
eltir bátar, en sumir þeirra teljast þó vart góðir safngripir né sérlega verðir að varðveita.
2. des. var opnuð í safninu sýning um íslenzkan sjávarútveg, sem nemendur 9. bekkjar
Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands gerðu einir að öllu leyti. Safnkennsla var með sama hætti
og undanfarin ár.
Sérstök sjóminjasýning, „Island og hafið", var opnuð í Hafnarhúsinu í Reykjavík 24. maí og
stóð til ársloka. Reykjavíkurhöfn lánaði húsnæði endurgjaldslaust og kostaði hún flutning
Engeyjarskipsins af neðstu hæð safnhússins og viðgerð þess. Björn G. Björnsson hannaði sýn-
inguna í samráði við Jón Allansson, en starfsmenn Sjóminja- og Þjóðminjasafnsins unnu mest
að henni undir forystu safnstjóra. A sýningunni var meðal annars auk Engeyjarskipsins loft-
skeytaklefinn af togaranum Geir og margvíslegar sjóminjar aðrar, einkum þær sem tengjast
Reykjavík. Á sýninguna komu alls 3673 gestir.
Á árinu voru saumuð segl á hákarlaskipið Ofeig á Reykjum, afarvönduð og gerð samkvæmt
teikningum og líkani. Þau saumaði Halldór Svavarsson seglasaumari. Rár þurfti að smíða og gaf
Pétur Guðmundsson í Ofeigsfirði efnið í þær af reka sínum, en gamla siglutréð ogbeitiásinn eru
til. Ekki er unnt við núverandi aðstæður að hafa skipið undir seglum en áhugi er á að reisa nýtt
og viðeigandi hús yfir Ofeig á Reykjum, þar sem hann gæti staðið undir seglum, sem eru þver-
segl með gamla laginu. Má þá minna á, hvílíkum stakkaskiptum Byggðasafnið í Skógum hefur
tekið við hið nýja hús þar sem skipið Pétursey er sýnt undir fullum seglum.
Settar voru grindur og plastdúkur yfir báta safnsins, sem standa úti í Vesturvör, bráða-
birgðabúnaður þangað til að hægt verður að fá varanlegra bátaskýli.
Nesstofusafn. Safnið var opið fjóra daga í viku 15. maí - 14. sept. og aðra tíma eftir sam-
komulagi. Gestir urðu alls 1.513 og voru á áttunda hundrað þeirra úr Vinnuskóla Reykjavíkur.
Eldri safngripir voru tölvuskráðir. 36 færslur voru í aðfangabók og má sérstaklega nefna, að
Tannlæknafélag Islands ákvað að færa safninu minjasafn félagsins að gjöf, sem verður afhent
þegar nýtt safnhús rís. Eru þetta einkum áhöld og hlutir frá hinum fyrri tannlæknum.
Horfið er nú frá að endurbyggja gömlu útihúsin sunnanvið Nesstofu vegna ákvörðunar
bæjarstjórnar um aðkomu. I staðinn bauð bæjarstjórnin lóð norðanvert við stofuna, nærri húsi
lyfjafræðinga. Var afráðið að taka því boði og byggja þar.
21.-24. júní var haldin hér 15. norræna ráðstefnan um sögu læknisfræðinnar. Fór hluti henn-
ar fram innan veggja safnsins, en Kristinn Magnússon forstöðumaður var í undirbúnings-
nefnd. Kristinn kynnti sér í ágústbyrjun lækningaminjasöfn í Lundúnum.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns. Gestir safnsins að Einholti 4 voru 477 á árinu, 618 árið
1994 og 357 árið 1993. Sýningarsal safnsins var lokað í júlí 1993 en hann var opnaður aftur í
marz 1994 eftir stækkun og gagngerðar endurbætur. Við það fékkst m.a. rými til breytilegra
sérsýninga við hlið hins fasta sýningarefnis.
Safnauki á árinu nam 182 færslum. Meðal helztu aðfanga má nefna blýmyntir úr dönsku ný-
lendunni Trankebar á Indlandi frá dögum Jóns Ólafssonar Indíafara, er bera m.a. merki Is-
lands, krýndan þorsk. Þá má nefna 50 aura vörumynt frá Grams-verzlun á Þingeyri, eina þekkta
eintak hennar nú. - Þá hefur bókakostur safnsins um myntfræði einnig verið aukinn.
Eins og áður er að jafnaði á vegum safnsins lítil sýning með breytilegu efni í afgreiðslusal
Seðlabankans við Arnarhól. Einnig hefur efni verið lánað til tímabundinna sýninga í öðrum
stofnunum.