Fylkir - 01.01.1923, Qupperneq 81
Hringsjá.
A1 m e n n t í ö i n d i.
Frá útlöndum.
Róstusamt hefur verið á Sínlandi á þessu og sl. ári. Hið mikla
ríki er ekki lengur keisaraveldi heldur lýðveldi, líkt og Bandaríki
N.-Ameríku; nl. N.-Sínland, Mið-Sínland og Suður-Sínland. En herinn
ræður mestu. Suður-Sínlands foringinn, dr. Sun Yat Sen, er nú ný-
^oniinn aftur til valda. Býst hann til að umskapa alla atvinnuvegi og
alla stjórnarskipun og uppeldi þar eystra, og laga alt, sem mest
má, eftir vestrænu sniði. Auðmanna félögum skal gefið leyfi til að
*eSgja járnbrautir um landið, vinna námur og s. frv. undir ríkis
eftirliti og aðalstjórn. Ameríkumenn og Bretar eiga að sitja fyrir
beim hlunnindum,
Merkust tíðindi á síðastl. ári eru óneitanlega alsherjar þjóðmála
fundurinn, sem haldinn var að tilhlutun Hardings Bandar. forseta, í
Washington D.C., til að ræða og ráða fram úr mestu vandamálum
heimsins og reyna að endurreisa Evrópu og hvítra manna menning
v'r rústum. Einna markverðasta tiliagan á þeim fundi kom frá Signor
Nitti fulltrúa ítala. Hún var sú, að sigurvegarar í síðasta heimsófriði
%ldu gefa upp allar kröfur til skaðabóta fyrir land-spell og eigna
ljón í Evrópustríðinu. Tillagan var feld!
Tilraun Bandaríkja-manna að fljúga frá N. Y., eða N.Jersey, til
Suður-Ameríku, beint eins og fuglinn flýgur, mislukkaðist á miðri
'e>ð. Vélin bilaði og flugvélin féll í sjóinn. En öllum mönnutn á
'°Ptfarinu varð bjargað. Tjónið metið á fimtán milliónir dollara,
f'ltigvélin var smíðuð í Ítalíu og hafði verið seld Bandaríkjunum
fyfir álitlega upphæð. Hins vegar hefur amerikanskuv kvenmaður,
^ua hr. Gatlings hríðbyssu-uppfinnara, flögið frá New-York og-
6