Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Side 1
Um
vísindalega starfsemi Jóns Sigurðs-
sonar og forstöðu hans fyrir hinu
íslenzka Bókmentafélagi.
Eftir Dr, Jón Þorkelsson.
Aðr enn eg fer að segja frá vísindalegri starfsemi Jóns
Sigurðssonar, verð eg að drepa á hin helztu æfiatriði
hans.
Tvær æfisögur af Jóni Sigurðssyni eru til:
önnur eftir Dr. K. Maurer í bók hans Zur politischen
Geschichte Islands, Leipzig 1880, á 303.—318. bls.;
hin eftir prestaskólakennara Eirík Briem í tímaritinu
Andvara, sétta ári, Kh. 1880, 1.—43. bls. Rit hans
og helztu æfiatriði alt fram að árinu 1864 eru talin í
Erslews Forfatterlexicon, 3. b., Kh. 1853, 170.—172.
bls. og hjá hinum sama höfundi í Supplement til al-
mindeligt Forfatterlexicon, 3. b. Kh. 1868, 172.—177.
bls. petta eru heimildarrit mín; enn auk þeirra hefi
eg haft til samanburðar flest rit Jóns Sigurðssonar.
Jón Sigurðsson er fœddr á Rafnseyri í ísafjarð-
arsýslu 17. dag júnímánaðar 1811. Faðir hans var
Sigurðr Jónsson, prestr á Rafnseyri 1821—1851. Jón
ólst upp hjá foreldrum sínum og kendi faðir hans hon-
um skólanám; enn Gunnlaugr Oddsson, dómkirkjuprestr,
útskrifaði hann vorið 1829, og var hann þá 18 ára.
Næsta ár, 1829—30, var hann við verzlun í Reykja-
Tímarit hins íslenzka bókmentafélags. III. 1