Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Page 125
Bókafregn.
i.
Upphaf allsherjarrikis á íslandi og
stjórnarskipunar þess
eítir próf, Dr. Konrad Maurer,
islenzkaS at Sigurði Sigurðarsyni, Reykjavik 1882,
Bók þessi er samin fyrir 50 árum og er prentuð
1852. Höfundur hennar, Dr. K. Maurer, hinn alkunni
frœðimaðr og vinr íslands, var þá og er enn háskóla-
kennari í lögum í Múnchen. pá. er þessi bók kom
út, var eg stúdent í Kaupmannahöfn, og er mér það
minnisstœtt, hvílika undrun hún vakti hjá mér og
öðrum samlöndum minum. er þá voru í Kaupmanna-
höfn. Oss var það nálega óskiljanlegt, hvernig höf-
undur bókarinnar, er bjó svo langt frá Norðurlöndum
og þeim bóksöfnum, þar sem mest líkindi eru til að
fá megi upplýsingar um sögu íslands, hefði getað
aflað sér svo yfirgripsmikillar, áreiðanlegrar og ná-
kvæmrar kunnáttu í henni og svo margra bóka og
annarra hjálparmeðala, sem bókin sýndi að hann
hafði við haft. það vakti og mestu furðu, hversu
maður í svo miklum fjarska hefði getað lært að skilja
íslenzkuna svo vel, sem bók þessi sýndi að hann
skildi hana, þvíað það segir sig sjálft, að eigi muni
hafa verið margir í Munchen, er gæti veitt tilsögn í
íslenzku. Verk þetta hefði verið góðra gjalda vert,
þótt engin ný eða frumleg kenning hefði komið fram