Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Síða 11
II
árið 1848. Hann hafði áðr enn hann varð skrifari
nefndarinnar, tekið mikinn þátt í störfum hennar, og
það var hann og Sveinbjörn Egilsson, sem um þessar
mundir unnu mest fyrir hana. Hið helzta, sem hann
vann fyrir hana er þetta :
íslenzkir Annálar sive Annales Islandici ab anno
Christi 803 ad annum 1430, Hafniæ 1847, 50-1-478
bls. 4.
Að þessu verki höfðu þeir starfað þorgeir Guð-
mundsson og Halldór Einarsson, sem báðir vóru sti-pendi-
arii Arnamagnœani. Hinn síðarnefndi varð sýslumaðr
í Borgarfjarðarsýslu árið 1835, enn þ>orgeir Guðmunds-
son varð prestr í Glólundi árið 1839. J>að ár hefir
Jón Sigurðsson líklega tekið við verkinu og lesið próf-
arkirnar á því, sem þá var óprentað. Werlauff segir
á xiv. bls. í innganginum, að J>orgeir Guðmundsson
hafi byrjað að semja nafnatal manna og staða; enn þá
er hann fór brott, hafi Jón Sigurðsson lokið við nafna-
tölin, samið lýsing handritanna, hlutaregistrið og fl.,
nefnilega alt það, sem stendr á xv.—1. bls. inngangs-
ins, og 406.—478. bls.
Edda Snorra Sturlusonar. Tomus primus, Hafniæ
1848. 718 bls. 8. Tomus secundus, Hafniæ 1852, 637
bls. 8. Tomi tertii pars prima, Hafniæ 1880. 498
bls. 8.
Hin latneska þýðing á 1. og 2. bindi, svo og
commentarii in carmina difficiliora, 1.—163. bls. í 3.
bindi, er verk Sveinbjarnar Egilssonar. Hitt hefir
Jón Sigurðsson unnið nálega alt. Hann hefir upp
skrifað og lagað (redigerað) textann, safnað orðamunin-
um, tilfœrt samanburðarstaði úr Donatus, Priscianus
og Isidorus við hinar mállegu ritgjörðir í 2. bindi,
samið formálana við 1. og 2. bindi, commentarios in
carmina á 163.—204. bls. í 2. bindi; gefið út Skálda-
tal og að mestu leyti samið athugasemðirnar við það á