Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Síða 3
209
for Isl. VI, 452), var Árni Sivertsen skipaður í hana,
og starfaði hann í þeirri nefnd, þangað til hún var
upphafin, 4. júlí 1806 (s.st. VII, 80). 18. desember 1807
varð hann ritstofufulltrúi í rentukammerinu og andað-
ist í Kaupmannahöfn 1. marz 1814. Hann átti danska
konu, og ílengdust börn þeirra í Danmörku.
2. Árni Thorsteinson, fæddur á Arnarstapa 5. apríl
1828, sonur Bjarna konferenzráðs Thorsteinsonar (A 12);
útskrifaður úr Reykjavikurskóla 1847 > can<3. juris 19.
júní 1854 með 2. einkunn í báðum prófum. Hann kom
út árið eptir og fjekk veitingu fyrir Snæfellsnessýslu
31. marz 1856; 18. febrúar 1861 varð hann landfógeti
og bæjarfógeti í Reykjavík, en með kgsúrsk. 31. jan-
úar 1874 voru þau embætti aðskilin frá 1. júlí s. á. (Tíð.
um stjórnarmál. ísl. III, 732), og hefur hann siðan verið
eingöngu landfógeti; 26. maí 1867 var hann sæmdur kan-
sellíráðs nafnbót og 2. ágúst 1874 riddarakrossi danne-
brogsorðunnar. Frá 1. júlí 1877 til 30. apríl 1878 var
hann jafnframt embætti sínu settur 2. assessor og dóms-
málaritari í yfirdóminum, og árin 1876 til 1879 hafði
hann á hendi hina umboðslegu endurskoðun íslenzkra
reikninga. Hann hefur setið á 3 seinustu alþingum
sem konungkjörinn þingmaður. Kona hans er Soffía
dóttir Hannesar Johnsens, kaupmanns í Reykjavík.
3. Arnór Árnason, fæddur á Belgsholti í Borgar-
firði 25. ágúst 1808, sonur Árna stúdents Davíðssonar
í Belgsholti og konu hans J>óru Jónsdóttur síðast prests
á Mosfelli í Mosfellssveit Hannessonar; útskrifaður úr
Bessastaðaskóla 1832; cand. juris 7. nóvember 1836
með 1. einkunn í hinu teóretiska en 2. einkunn íhinu
praktiska prófi; var hann þá um veturinn á skrifstofu
birkidómarans í nyrðra birki Kaupmannahafnar, en
kom út sumarið 1837, og var fyrst 1 ár hjá Jóhanni
bróður sínum, sýslumanni í þingeyjarsýslu, síðan settur
14'