Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Síða 17
223
dæmdur frá því 22. júli 1790. Hann bjó á Felli við
Kollaíjörð, og andaðist í Víðidalstungu seint í septem-
bermánuði 1810; kona hans var Ástríður (-j* 1802)
Bjarnadóttir sýslumanns Halldórssonar á þingeyrum,
og áttu þau eina dóttur, Guðrúnu, sem var gipt sjera
Einari Bjarnasyni Thorlacíus á Grenjaðarstað.
28. Hallgrimur Bachmann, fæddur á Stóru-Seljum
í Helgafellssveit 14. desember 1799, sonur sjera Jóns
Hallgrímssonar Bachmanns, síðast prests að Klaustur-
hólum, og Ragnhildar Björnsdóttur prófasts þ>orgríms-
sonar á Setbergi; útskrifaður úr Bessastaðaskóla 1823
og skrifaður í stúdentatölu við háskólann 1825 ; cand.
juris 22. apríl 1830 með 2. einkunn í báðum prófum.
Hann hafði í hyggju að gefa út íslenzt lagasafn (Lovs.
for Isl. IX, 761), en andaðist í Kaupmannahöfn xi.
april 1834, ókvæntur og barnlaus.
29. Hannes Christian Steingrímur Finsen, fæddur í
Reykjavík i3.maí 1828, sonur Olafs assessors Finsens
(A 69); útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1848; cand.
juris 12. júní 1856 með 2. einkunn í báðum prófum.
Hann var fyrst í yfirskoðunarskrifstofu hinnar íslenzku
stjórnardeildar, síðan varð hann landfógeti á Færeyj-
um 15. marz 1858, og fjekk kansellíráðs nafnbót 9.
júní 1868 ; 30. október 1871 var honum veitt amtmanns-
embættið á Færeyjum, og 26. júlí 1874 var hann sæmd-
ur riddarakrossi dannebrogsorðunnar. Hann er tví-
kvæntur, og bæði fyrri og seinni kona hans dönsk.
30. Hermannius Elías Johnsson, fæddur á ísafirði
17. desember 1825, sonur Jóns Jónssonar, verzlunar-
stjóra þar, og konu hans Guðbjargar Jónsdóttur Hjalta-
líns, síðast prests á Breiðabólstað á Skógarströnd; út-
skrifaður úr Reykjavíkurskóla 1849; cand.juris 12.júní
1856 með 2. einkunn í báðum prófum. Hann var sett-
ur málaflutningsmaður við yfirdóminn 30. júlí 1858,
Tímarit hins islenzka Bókmentafélags. 111. 15