Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Qupperneq 20
426
andaðist þar 26. marz 1840. Kona hans var Ólína
dóttir Bonnesens sýslumanns; börn þeirra dóu ung.
34. Jóhannes Júlíus Havsteen, fæddur á Akureyri
13. ágúst 1839, sonur Jóhans kaupmanns Havsteens
og konu hans Soffíu Thyrrestrup, kaupmanns á Akur-
eyri; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1859; cand. juris
7. júní 1866 með 2. einkunn í báðum prófum. Hann
var fyrst á skrifstofu amtmannsins í Holbæk, varð 1870
assistent í hinni íslenzku stjórnardeild og var settur
amtmaður í norður- og austuramtinu 9. júní 1881. Hann á
danska konu, dóttur Westengaards ofursta í landhernum.
35. Jón Arnórsson, fæddur á Dunki í Hörðudal
1734, sonur Arnórs Jónssonar, sýslumanns í Borgar-
fjarðarsýslu, og konu hans Steinunnar Jónsdóttur pró-
fasts þórarinssonar í Hjarðarholti í Dölum; útskrifað-
ur úr Skálholtsskóla 1757 og skrifaður í stúdentatölu
við háskólann 1761; cand. juris 23. april 1765 með 2.
einkunn. Hann var síðan skrifari hjá Skúla landfógeta
Magnússyni, var skipaður aðstoðarmaður Hans Wíums,
sýslumanns í miðhluta og suðurhluta Múlasýslu, 16.
maí 1769 (Lovs. for Isl. III, 634) og fjekk veitingu
fyrir Snæfellsnessýslu og Arnarstapa umboði 9. febrú-
ar 1778. Hann bjó á Ingjaldshóli og seinast á Elliða
og andaðist þar 26. apríl 1792. Kona hans var Guð-
rún yngri (þ 15. jan. 1801) Skúladóttir landfógeta
Magnússonar; börn þeirra mönnuðust lítt.
36. JÓn Eiríksson, fæddur á Skálafelli í Hornafirði
31. ágúst 1728, sonur Eiríks Jónssonar, bónda þar, og
konu hans Steinunnar Jónsdóttur bónda á Hofi í Ör-
æfum Vigfússonar; útskrifaður úr Niðarósskóla 1748;
cand. juris 22. ágúst 1758 með 1. einkunn. 22. apríl
1759 var hann skipaður prófessor í lögfræði við Sór-
eyjar háskóla, en var kallaður frá því embætti 4. júní
1771 og skipaður „Committeret“ (ritstofustjóri) í hinni
norsku stjórnardeild með veitingabrjefi 8. júlí s. á. (sbr.