Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Síða 33
239
cand. juris 19. júní 1865 með 2. einkunn í báðumpróf-
um. Hann var síðan á skrifstofu stiptamtmanns og
landfógeta, var settur fyrir Dalasýslu 23. ágúst 1867,
og fjekk veitingu fyrir henni 12. maí 1868, og bjó þar
á Staðarfelli og Innri-Fagradal. 12. apríl 1877 var hon-
um veitt Húnavatnssýsla og flutti hann sig þá að
Kornsá. Hann sat á alþingi 1881 sem þjóðkjörinn þing-
maður. Kona hans er Kristín Ásgeirsdóttir bókbind-
ara Finnbogasonar á Lambastöðum á Seltjarnarnesi.
59. Lárus Snefjeld, fæddur á Hólum í Hjaltadal
1751, sonur Jóns prófasts Magnússonar á Staðastað—
bróður Skúla landfógeta — og konu hans þórunnar
Hansdóttur Möðruvalla-klausturhaldara Schevings; út-
skrifaður úr Skálholtsskóla 1770; cand. juris 22. marz
1776 með 1. einkunn. Hann varð kopíisti í rentu-
kammerinu, og andaðist í Kaupmannahöfn 1786, ó-
kvæntur og barnlaus.
60. Lárus Thórarensen, fæddur á Möðruvöllum í
Hörgárdal i5.júní 1799; sonur Stefáns amtmanns þ>ór-
arinssonar (A 87) ; útskrifaður úr heimaskóla af Árna
biskupi Helgasyni 1816; cand. juris 13. apríl 1821 með
1. einkunn í hinu teóretiska og 2. einkunn í hinu
praktiska prófi. Hann var síðan í rentukammerinu,
og fjekk Skagafjarðarsýslu 13. maí 1826 (Lovs. for
Isl. IX, 83), og þjónaði henni þangað til honum 12.
janúar 1853 var veitt lausn frá fardögum s. á. Hann
bjó á Enni á Höfðaströnd, og andaðist þar ig. apríl
1864. Kona hans var Elín (ý 24. ágúst 1873) dóttir
Jakobs Havsteins, kaupmanns á Hofsós; einkadóttir
þeirra, Maren Ragnheiður Friðrikka, var gipt Jóhann-
esi sýslumanni Guðmundssyni (B 12).
61. Magnús Gisíason, fæddur á Geitaskarði 1737,
sonur Gísla biskups Magnússonar á Hólum og konu
hans Ingibjargar Sigurðardóttur frá Geitaskarði Ein-
Timarit hins íslenzka Bókmentafélags. IIX. 16