Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 34
240
arssonar biskups; útskrifaður úr Hólaskóla 1757, og
skrifaður árið eptir í stúdentatölu við háskólann; cand.
juris 17. júní 1765 með 3. einkunn í báðum prófum.
Hann var settur sýslumaður i Skagafjarðarsýslu 1771
eptir lát Jóns sýslumanns Snorrasonar og-1773 í Húna-
vatnssýslu, og' fjekk veitingu fyrir henni 21. febrúar
1774; var Húnavatnssýsla þá talin versta sýsla á land-
inu. Hann bjó á Geitaskarði og andaðist þar 1789.
Hann átti Helgu (j- 1784) Halldórsdóttur prófasts
Jónssonar á Hólum í Hjaltadal; börn þeirra voru:
sjera Gísli á Tjörn á Vatnsnesi, sjera Halldór í Saur-
bæ á Hvalfjarðarströnd og Ingibjörg, sem fyrst var
gipt Jóni bónda Jónssyni á Auðunnarstöðum i Víðidal
og síðan sjera Einari Guðbrandssyni á Auðkúlu.
62. Magnús Ólafsson, fæddur í Svefneyjum 17281,
sonur Olafs bónda Gunnlaugssonar í Svefneyjum og
konu hans Ragnhildar Sigurðardóttur lögrjettumanns
Sigurðssonar á Brjánslæk; útskrifaður úr Skálholts-
skóla 1754; cand. juris 19. júní 1769 með 2. einkunn.
10. marz s. á. hafði hann fengið konungsbrjef fyrir
varalögmannsdæmi sunnan og austan, en rjettur lög-
maður varð hann ekki fyr en 9. marz 1791, þegar
Björn lögmaður Markússon andaðist. Hann var stóls-
haldari í Skálholti frá 1777—85, flutti sig síðan að
Meðalfelli í Kjós, og andaðist þar 14. janúar 1800;
var hann hinn síðasti lögmaður, sem andaðist í lög-
mannsdæmi. Magnús lögmaður átti Ragnheiði (j* 16.
marz 1831) dóttur Finnsbiskups Jónssonar; þeirrabörn
voru: Finnur etazráð og „Geheime-Arkivarius11, Ragn-
hildur kona sjera Einars Pálssonar á Meðalfelli og
Guðríður kona Stefáns Pálssonar í Oddgeirshólum.
Sbr. lögmannatal Jóns Sigurðssonar, Nr. 136, í
Safni til sögu íslands II, 163.
1) Sjá Minnisverð Tíð. II, 442 og Minerva 1803, 332.
bls.; aðrir telja hann íæddan 1731.