Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 38
244
Vibe, og’ andaðist i mestu bágindum 1803, ókvæntur
og bamlaus.
69. Ólafur Finsen. fæddur i Skálholti 22. mai 1793,
albróðir Jóns kansellíráðs Finsens (A 38); útskrifaður
úr heimaskóla af Steingrími biskupi Jónssyni 1814;
cand. juris 7. október 1817 með 1. einkunn í hinu teó-
retiska og 2. einkunn í hinu praktiska prófi. Hann
var settur sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu 12.
september 1818, og fjekk veitingu fyrir henni 5. maí
1821, og kammerráðs nafnbót 8. mai 1832. 18. april
1834 varð hann 2. assessor og dómsmálaritari í yfir-
dóminum, en hafði verið settur, frá því að Magnús
konferenzráð andaðist (A 63). Hann þjónaði land- og
bæjarfógetaembættinu fyrir Ulstrup frá 1831 til 1832,
og stiptamtmannsembættinu og amtmannsembættinu í
suðuramtinu fyrir Krieger frá 1834 til 1836. Hann
andaðist í Reykjavik 24. febrúar 1836. Kona hans
var María dóttir Ola Möllers, kaupmanns i Reykjavík;
börn þeirra eru: Vilhjálmur Finsen hæstarjettardómari
(A 95); Jón Finsen stiptsfysikus á Lálandi og Falstri;
Hannes Finsen amtmaður á Færeyjum (A 29); Oli
Finsen póstmeistari í Reykjavík, og Valgerður seinni
kona Halldórs prófasts Jónssonar á Hofi í Vopnafirði.
70. Ólafur Halldórsson, fæddur á Hofi í Vopna-
firði 15. mai 1855, sonur Halldórs prófasts Jónssonar
og fyrri konu hans Gunnþórunar Gunnlaugsdóttur dóm-
kirkjuprests Oddsens; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla
1877; cand. juris 2. júní 1882 með 1. einkunn.
71. Ólafur Ólafsson, fæddur á J>verá í Skagafirði
25. desember 1754, sonur Olafs bónda Jónssonar á
Frostastöðum og konu hans Kristínar Björnsdóttur
prests í Hofstaðaþingum Skúlasonar; útskrifaður úr
Hólaskóla 1773, var síðan skrifari hjá Olafi stiptamt-
manni og var skrifaður í stúdentatölu við háskól-
ann 1777; cand. juris 20. ágúst 1782 með 1. einkunn.