Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Síða 46
252
Sönderhald og Österlisbjerg hjeruðum 1791, og 1796
jafnframt ráðamaður í Randers; 7. desember 1804 varð
hann borgmeistari í Randers og fjekk lausn frá því
embætti 13. október 1819, en var þá skipaður birki-
dómari og skrifari í Estrup birki og fjekk loks algjör-
lega lausn frá embætti 1. júní 1831. Hann var
gjörður Dr. juris af háskólanum í Göttingen 1801, og
25. júlí 1809 var hann sæmdur jústizráðs nafnbót. Hann
andaðist í Randers 23. nóvember 1840. Hann átti
danska konu, og eru mikilsverðir menn i Danmörku
frá honum komnir, þar sem er Dr. med. S. A. N.
Stadfeldt, prófessor við háskólann í Kaupmannahöfn
og yfirlæknir á hinni konunglegu fæðingar- og hjúkr-
unarstofnun; og J. D. S. Adolph, þjóðbankafulltrúi og
einn hinn merkasti stórkaupmaður í Kaupmannahöfn.
84. Stefán Bjarnarson, fæddur á Ketilsstöðum í
Jökulsárhlíð 29. júlí 18261, sonur Björns Sigurðssonar,
bónda þar, og konu hans þorbjargar Stefánsdóttur
prests á Presthólum Lárussonar Schevings; gekk í
Reykjavíkurskóla, en var útskrifaður af cand. theol.
Magnúsi Eiríkssyni í Kaupmannahöfn 1851; cand. juris
19. júni 1858 með 2. einkunn í báðum prófum. Hann
var s. á. settur sýslumaður í ísafjarðarsýslu og fjekk
veitingu fyrir henni 28. janúar 1859, og 26. febrúar
1866 varð hann jafnframt bæjarfógeti áísafirði; honum
var veitt Árnessýsla 6. nóvember 1878, en hann tók
ekki við henni fyr en 24. júní 1879. Hann býr nú á
Gerðiskoti í Flóagaflshverfi. Kona hans er dönsk.
85. Stefán Stephensen, fæddur á Bessastöðum 27.
desember 1767, sonur Ólafs stiptamtmanns Stefánsson-
ar (A 72); útskrifaður úr Skálholtsskóla 1785; cand.
juris 5. nóvember 1788 með 1. einkunn í báðum próf-
1) í vitnisburðarbók skólans stendur, að hann sje fædd-
ur 20. júlí 1827.