Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 48
*54
jafnframt skipaður bæjarfógeti á Akureyri; hann
þjónaði amtmannsembættinu í norður- og austuramt-
inu i fjærvist Havsteens amtmanns frá því um haustið
1862 og þangað til sumarið eptir. Hann á danska
konu.
87. stefán þórarinsson, fæddur á Stóru-Grund í
Eyjafirði 24. ágúst 1754, sonur þórarins sýslumanns
Jónssonar og konu hans Sigríðar Stefánsdóttur prests
á Höskuldsstöðum Olafssonar; útskrifaður í Kaup-
mannahöfn af Hannesi biskupi Finnssyni 1771; cand.
juris 6. febrúar 1776 með 1. einkunn. Hann var síðan
í rentukammerinu, þangað til hann með kgsbrjefi 3.
febrúar 1779 var skipaður varalögmaður norðan og
vestan hjá Sveini lögmanni Sölvasyni, og þegar Sveinn
lögmaður andaðist (6. ágúst 1782) varð hann lögmað-
ur að fullu og öllu. Hann var skipaður amtmaður
yfir norður- og austuramtinu 12. maí 1783 (Lovs. for
Isl. IV, 711), en hjelt þó jafnframt lögmannsdæminu
þangað til 19. ágúst 1789, að hann fjekk algjörlega
lausn frá því; amtmannsembættinu þjónaði hann til
dauðadags. Hann var settur stiptamtmaður og amt-
maður bæði í suðuramtinu og vesturamtinu frá því að
Ludvig Erichsen dó, þangað til Trampe tók við (sbr.
A 72, nmgr.), og fra 29. marz 1810 til 20. marz 1813
var hann forseti í stjórnarnefnd stiptamtmannsembætt-
isins1. Með konunglegri umboðsskrá 12. desember
1) Trampe stiptamtmaður fór utan til Englands haustið
1809, og með umboðsskrá, dagsettri í London 29. marz 1810,
skipaði hann Stefán amtmann þórarinsson, ísleif yfirdómara
Einarsson og Erydensberg landfógeta í nefnd, er skyldi gegna
embættisstörfum stiptamtsmanns og amtmannsins í suður-
amtinu. Með kgsúrsk. 23. júlí sama ár var Trampe skipaður
stiptamtmaður í þrándheimi, og jafnframt var nefnd sú, er
hann hafði sett á íslandi, staðfest þannig, að hún skyldi hafa
á hendi störf stiptamtmanns, en aptur var Castenskjold skip-
aður amtmaður í suðuramtinu og honum bætt við í nefndina.