Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 49
»55
1799 (Lovs. for Isl. VI, 414) var hann skipaður í nefnd
um skólamál og dómaskipun íslands. Honum var
veitt konferenzráðs nafnbót 31. marz 1813, og 31. júlí
1815 var hann sæmdur riddarakrossi dannebrogsorð-
unnar. Hann bjó á Möðruvöllum í Hörgárdal og
andaðist þar 12. marz 1823. Stefán amtmaður átti
Ragnheiði (■{• 9. ágúst 1843) Vigfúsdóttur sýslumanns
Schevings (A 92); þau áttu alls 18 börn; synir þeirra,
sem til aldurs komust, voru: Vigfús kansellísekreteri
(A 93), þórarinn kaupmaður í Skjaldarvík, Olafur
læknir á Hofi, Oddur lyfsali á Akureyri, Lárus sýslu-
maður á Enni (A 60), Magnús á Eyrarlandi og Stefán
á Espihóli; en dætur: Anna Sigríður, fyrri kona Páls
amtmanns Melsteðs (B 20), Guðrún, kona Dr. Gísla
Brynjólfssonar á Hólmum, og Margrjet.
Æfisaga Stefáns konferenzráðs er prentuð sjer í
lagi, Kph. 1824, sbr. lögmannatal Jóns Sigurðssonar
Nr. 134 í Safni til sögu Islands, II, 159,. og Ný Fje-
lagsrit 5. ár.
88. steindór Finnsson, fæddur í Reykholti 7. jan-
úar 1743, sonur Finns biskups Jónssonar og konu hans
Guðríðar Gísladóttur frá Máfahlíð Jónssonar, systur
Magnúsar amtmanns; útskrifaður úr Skálholtsskóla
1759 og skrifaður í stúdentatölu við háskólann 1764;
cand. juris 7. júní 1771 með 1. einkunn. Honum var
veitt Árnessýsla 12. febrúar 1772 og þjónaði hann
henni þangað til hann fjekk lausn frá embætti, 31.
marz 1813; hann var sæmdur kansellíráðs nafnbót 8.
ágúst 1810. Steindór sýslumaður bjó á Oddgeirshól-
um og andaðist þar 26. ágúst 1819. Hann átti Krist-
ínu (ý 13. apríl 1810) Halldórsdóttur prests á Breiða-
Með kgsúrsk. 20. marz 1813 var nefnd þessi af numin og
Castenskjold skipaður stiptamtmaður.
Xímarít hins íslenzka Bókmentafélags. III. 17