Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 56
262
og 1857 sem konungkjörinn þingmaður. Kona hans
er Jóhanna dóttir Lárusar kaupmanns Knudsens i
Reykjavík ; þau búa á Litla-Hrauni á Eyrarbakka og
eru þeirra börn: Árni, bóndi í Ameríku; þórður, læknir
á Suðurnesjum; sjera Oddgeir í Miklaholti; Margrjet
kona sjera Páls Sigurðssonar í Gaulveijabæ; þorgrim-
ur barnaskólakennari; Sigurður og Sigríður.
99. þórður Jónasson, fæddur áNesi í Aðalreykja-
dal 26. febrúar 1800, sonur sjera Jónasar Jónssonar
síðast prests í Reykholti og konu hans þórdisar Jóns-
dóttur prests i Garði Sigurðssonar; útskrifaður úr
Bessastaðaskóla 1820 ; síðan kenndi hann piltum undir
skóla, og var um tíma skrifari hjá þórði sýslumanni
Björnssyni og var skrifaður í stúderitatölu við háskól-
ann 1824; cand. juris 19. april 1830 með 1. einkunn í
báðum prófum. Hann var eptir það í fjármálastjórn-
inni (Finantsdeputationen), þangað til hann fjekk Eyja-
íjarðarsýslu 24. febrúar 1835, tók við henni um haustið
og þjónaði henni þangað til um sumarið 1837. 15.
september 1836 varð hann 1. assessor i yfirdóminum
og 31. marz 1856 jústitíaríus, og fjekk lausn frá því
embætti með fullum launum 24. maí 1877. Hann Qekk
jústizráðs nafnbót 6. október 1852, riddarakross danne-
brogsorðunnar 6. október 1856, kommandörkross sömu
orðu 1. flokk 11. maí 1865 og heiðursmerki danne-
brogsmanna 2. ágúst 1874; þar að auki fjekk hann
riddarakross heiðursfylkingarinnar frakknesku 1863.
Hann veitti ýmsum embættum forstöðu sem settur:
Gullbringu- og Kjósarsýslu frá 3. marz til 31. júlí 1840
og aptur frá 19. september 1850 og þangað til Bau-
mann tókvið sumarið 1853; amtmannsembættinu í norð-
ur- og austuramtinu frá því að Grimur Johnsson dó
sumarið 1849 °í? þangað til Havsteen tók við sumarið
eptir; landfógetaembættinu frá því í marz 1852 og
þangað til Vilhjálmur Finsen tók við sama sumar;