Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 65
271
an á skrifstofu Gríms Johnssonar, er þá var bæjarfó-
geti í Skjelskör, og fjekk veitingarbrjef fyrir Snæfells-
nessýslu 13. maí 1823 ; síðan fjekk hann veitingu fyrir
Borgarfjarðarsýslu ig. maí 1827, en fór þangað ekki,
og fjekk Mýra- og Hnappadalssýslu 24. maí 1828, og
loks fjekk hann Rangárvallasýslu 19. apríl 1836, tók
við henni i fardögum árið eptir og þjónaði henni til
dauðadags. Eptir að hann varð sýslumaður, bjó hann
fyrst í Máfahlíð, siðan í Einarsnesi og á Hamri á Mýr-
um og síðast á Kollabæ í Fljótshlíð og andaðist þar 4.
júli 1843. Með fyrri konu sinni átti hann 3 dætur:
Oddnýju; Kristínu, konu sjera Jóhanns Björnssonar í
Keldnaþingum, og Sigríði, konu sjera Páls Ingimund-
arsonar í Gaulverjabæ. Seinni kona hans var Kristín
(•{• 17. sept. 1876) Ingvarsdóttir frá Skarði á Landi
Magnússonar, og þeirra börn: Guðlaug, kona sjera
Gísla Jóhannessonar á Reynivöllum; Ingibjörg, kona
Eggerst sýslumanns Briems; Sigríður, kona Jóns pró-
fasts þórðarsonar á Auðkúlu ; Sigurður sýslumaður í Bæ
(A 81); Elín, og Áslaug kona Magnúsar Stephensens
i Viðey.
7. Erlendur þórarinsson, fæddur á Bjarnanesi 6.
desember 1828, sonur f>órarins prófasts Erlendssonar,
slðast á Hofi í Álptafirði, og konu hans Guðnýjar
Benediktsdóttur prests á Skorrastað f>orsteinssonar.
Hann lærði hjá Árna biskupi Helgasyni, fór síðan ut-
an og tók próf í dönskum lögum 10. júlí 1854 með 1.
einkunn í báðum prófum, og fjekk 27. s. m. veitingu
fyrir ísafjarðarsýslu. Hann drukknaði á íafjarðardjúpi
29. desember 1857, ókvæntur og barnlaus.
8. Finnur Thorsteinson, fæddur á Arnarstapa 1822,
sonur Bjarna konferenzráðs Thorsteinsonar (A 12); út-
skrifaður úr heimaskóla af Árna biskupi Helgasyni 1842,
og var skrifaður í stúdentatölu við háskólann árið eptir;
Xímarit hins íslenzka Bókmentafélags. III. 18