Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 70
276
mannahöfn, og Sig’urður ráðsmaður hegningarhússins
í Reykjavík.
Æfisaga Jóns Guðmundssonar er prentuð í And-
vara, 7. ári.
15. Jón Johnsen, fæddur á Móeiðarhvoli n. maí
1778, sonur Jóns sýslumanns Jónssonar (A 43); út-
skrifaður úr heimaskóla 1797; exam. jur. 22.júni 1800
með 2. einkunn í báðum prófum. Hann gjörðist árið
eptir lögsagnari Steindórs sýslumanus Finnssonar í
Árnessýslu og var það, þangað til Steindór fjekk
lausn 1813, og aptur lögsagnari Theódórs sýslumanns
Thorlacíusar í sömu sýslu frá 1815—19; eptir það var
hann settur fyrir sýsluna 1819—20 og aptur 1833—35;
sömuleiðis var hann umboðsmaður yfir konungsjörðum
í Árnessýslu, þangað til þær voru seldar, hin síðasta
19. apríl 1837. Hann bjó á Drumboddsstöðum og
Skálholti í Biskupstungum og síðast á Stóra-Ármóti
í Flóa, og drukknaði niður um ís á þjórsá 13. nóvem-
ber 1843. Kona hans var Halla Magnúsdóttir bónda
á Skálmholtshrauni á Skeiðum Jónssonar, og þeirra
börn: Jón etazráð (A 41), Magnús kaupmaður og óð-
alsbóndi í Bráðræði, J>orsteinn sýslumaður (A 104) og
Helga kona Árim bónda Magnússonar á Stóra-Ármóti.
16. Jón Thóroddsen, fæddur á Reykhólum 5. októ-
ber 1819, sonur J>órðar beykis fóroddssonar á Reyk-
hólum og konu hans þóreyjar Gunnlaugsdóttur prests
í Reynistaðarþingum Magnússonar; útskrifaður úr
Bessastaðaskóla 1840 og skrifaður í stúdentatölu við
háskólann árið eptir. Hann lauk ekki embættisprófi
í það sinn, en í marzmánuði 1848 gekk hann í lið
með Dönum móti J>jóðverjum, og fjekk lausn frá her-
þjónustunni um haustið, þegar vopnahlje var samið.
Um vorið 1850 kom hann út aptur til íslands alfarinn
og var þá settur fyrir Barðastrandarsýslu, en fór utan
!853 og tók próf í dönskum lögum 25. janúar 1854