Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 72
27«
18. Otti Effersö, fæddur í Orfarsey 8. október
1785; sonur Guðmundar bónda Jónssonar í Skildinga-
nesi og konu hans Guðríðar Ottadóttur bónda á Hrólfs-
skála Ingjaldssonar; útskrifaður úr heimaskóla 1802.
Hann var síðan nokkur ár á skrifstofu stiptamtmanns
í Reykjavík og var settur sýslumaður í Gullbringu-
og Kjósarsýslu 15. ágúst 1812 og þjónaði henni til
29. apríl 1814. Hann fór þá utan og tók próf í
dönskum lögum 1816 með 1. einkunn i báðum próf-
um; 17. mai árið eptir fjekk hann veitingu fyrir Snæ-
fellsnessýslu, og andaðist hann þar 12. febrúar 1818,
ókvæntur. Dóttir hans með Elínu Egilsdóttur Sandholt
var Solveig, sem fyrst var gipt Jóni Vigfússyni prentara
og síðan Jóni Jónssyni prentara, báðum í Reykjavík.
19. Páll Guðmundsson, fæddur i Krossavík 1777,
sonur Guðmundar Pjeturssonar sýslumanns i Norður-
Múlasýslu og fyrri konu hans þórunar Pálsdóttur prófasts
Guðmundssonar í Vallanesi; útskrifaður úr heimaskóla
af Geir biskupi Vídalín 1801; exam. juris 25. júní 1804
með 1. einkunn í hinu teóretiska og 2. einkunn í hinu
praktiska prófi. Hann fjekk Norður-Múlasýslu eptir
föður sinn 24. júlí 1807 og bjó fyrst á Breiðavaði og
siðan á Hallfreðarstöðum og andaðist þar um haustið
1815. Hann átti Malenu Jensdóttur verzlunarmanns
Örums, systurdóttur Geirs biskups, og voru þeirra börn:
Páll stúdent og amtsskrifari; sjera Stefán aðstoðar-
prestur á Hofi í Vopnafirði; sjera Siggeir á Skeggja-
stöðum; Sigríður fyrst kona sjera J>orsteins Helgason-
ar i Reykholti og síðar seinni kona sjera Sigurðar
Thórarensens i Hraungerði; og þórunn fyrst gipt Hall-
dóri stúdent Sigfússyni og síðan Páli umboðsmanni
Olafssyni á Hallfreðarstöðum.
20. Páll Melsteð, fæddur á Völlum i Svarfaðardal
31. marz 1791, sonur J»órðar Jónssonar, prests þar, og
konu hans Ingibjargar Jónsdóttur prests á Melstað