Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 73
279
Guðmundssonar; útskrifaður úr Bessastaðaskóla 1809,
var siðan skrifari Stefáns amtmanns f>órarinssonar,
fór utan 1813 og tók próf í dönskum lögum 1815 með
1. einkunn í báðum prófum. Hann var settur sýslu-
maður í Suður-Múlasýslu 3. júní 1815 og fjekk veit-
ingu fyrir henni 19. september s. á.; þvf næst fjekk
hann Norður-Múlasýslu 17. maí 1817 og kammeráðs
nafnbót 8. mai 1832. Meðan hann var sýslumaður i
Múlasýslunum, bjó hann á Ketilsstöðum á Völlum, en
24. febrúar 1835 var honum veitt Árnessýsla og flutti
hann sig þá að Hjálmholti í Flóa; fardagaárið 1836—
37 þjónaði hann jafnframt Rangárvallasýslu fyrir Eirík
sýslumann Sverrisson; 8. júli 1848 var honum veitt
jústizráðs nafnbót. Loks varð hann amtmaður í vestur-
amtinu 12. mai 1849; þjónaði hann þvi embætti til
dauðadags og andaðist í Stykkishólmi 9. maí 1861.
Hann var sæmdur riddarakrossi dannebrogsorðunnar
10. júní 1841, heiðurmerki dannebrogsmanna 21. sept-
ember 1851 og kommandörkrossi dannebrogsorðunnar
14. júlí 1859. Hann sat í embættismannanefndinni í
Reykjavík 1839 og 1841, á alþingi 1845 sem aðstoð-
armaður konungsfulltrúa, 1847 sem konungkjörinn þing-
maður, 1849 og á 4 næstu alþingum, síðast 1859, sem
konungsfulltrúi, og loks á þjóðfundinum 1851 sem
konungkjörinn þingmaður og var forseti þjóðfundarins;
hann sat og í landbúnaðar- og skattanefndinni 1845
(sbr. A 100). Páll amtmaður var tvíkvæntur; fyrri
kona hans var Anna Sigríður (j- 8. júní 1844) dóttir
Stefáns amtmanns þórarinssonar, og voru þeirra börn:
Páll málaflutningsmaður við yfirdóminn (B 21); Ragn-
heiður kona Vigfúsar sýslumanns Thórarensens (B 28);
Ingibjörg kona sjera Gísla Thórarensens á Ásgautstöð-
um; Margrjet; Sigurður lector theol. og forstöðumað-
ur prestaskólans í Reykjavík; Björg kona Guðmund-
ar sýslumanns Pálssonar ; Guðrún kona Stefáns pró-