Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 74
fasts Stephensens í Holti í Önundarfirði; Jón prófast-
ur f Klausturhólum; Stefanía kona Halldórs aðjunkts
Guðmundssonar; Jakobfna fyrri kona Pjeturs kaup-
manns Eggerz í Akureyjum; Halldór cand. phil. og
amtsskrifari ; og J>órdís kona Jónasar sýslumanns
Thorstensens. Seinni kona Páls amtmanns var Ingi-
leif Jónsdóttir prests á Klausturhólum Bachmanns og
þeirra sonur Hallgrímur cand. phil.
21. Páll Melsteð, fæddur á Möðruvöllum í Hörgár-
dal 13. nóvember 1812, sonur Páls amtmanns Melsteðs
(B 20); útskrifaður úr Bessastaðaskóla 1834. Hann
fór utan sama ár, var skrifaður í stúdentatölu við há-
skólann og las lög, en leysti ekki af hendi embættis-
próf í það sinni. Hann kom út aptur 1840 og bjó
nokkur ár á Brekku á Álptanesi og flutti sig síðan
tíl Reykjavíkur; 1848—49 þjónaði hann Árnessýslu
í fjærveru föður síns, og 19. maí 1849 var hann settur
sýslumaður í Snæfellsnessýslu og þjónaði henni þang-
að til að Bogi Thórarensen tók við 1854, og bjó hann
þá í Bjarnarhöfn. Árið eptir fór hann aptur utan og
tók próf í dönskum lögum 28. janúar 1857 með 2.
einkunn í báðum prófum. Siðan þjónaði hann Gull-
bringu- og Kjósarsýslu 1858—62, fyrst fyrir Baumann
sýslumann og siðan á eigin ábyrgð, og 21. janúar
1862 var hann settur málaflutningsmaður við yfirdóm-
inn; jafnframt hefur hann haft á hendi tímakennslu
við latínuskólann siðan 1868. Páll Melsteð er tvi-
kvæntur; fyrri kona hans var Jórunn (ý 21. ág. 1858),
dóttir ísleifs háyfirdómara Einarssonar; af börnum
þeirra komust að eins 3 upp, og er eitt þeirra Anna
kona Stefáns Stephensens umboðsmanns Múkaþverár-
klausturs; seinni kona Páls Melsteðs er þóra dóttir
Gríms amtmanns Johnssonar.
22. Pjetur Ottesen, fæddur á Sviðholti á Álptanesi
1778, sonur Odds yfirdómsnótaríusar og J>ingeyra klaust-