Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 75
28i
urhaldara Stefánssonar og’ konu hans Hólmfriðar Pjet-
ursdóttur sýslumanns porsteinssonar (A 75); útskrifaður
úr Hólaskóla 1799; exam.juris 29. júní 1801 með 2. ein-
kunn í hinu teóretiska og 1. einkunn í hinu praktiska
prófi. Hann varð síðan skrifari, fyrst hjá Krogh sýslu-
manni í Húnavatnssýslu og síðan hjá Birni jústizsekre-
tera Stephensen á Lágafelli, var settur fyrir Mýra- og
Hnappadalssýslu 18. apríl 1807 og fjekk veitingu fyr-
ir henni 25. ágúst 1808 og bjó fyrst á Sfðumúla og
síðan á Svignaskarði. Hann fjekk lausn frá embætti
24. maí 1828, þjónaði Mýra- og Hnappadalssýslu apt-
ur sem settur frá 1, júní til 6. október 1837 og and-
aðist á Hlöðutúni í Stafholtstungum 20. júní 1866. Kona
hans var jpórunn (-j* 12. júlí 1881) dóttir Stefáns um-
boðsmanns Schevings á Ingjaldshóli, og þeirra börn :
Sigrfður fyrri kona sjera Sveinbjarnar Hallgrímssonar,
síðast á Glæsibæ ; Helga, kona Kristoffers bónda Finn-
bogasonar á Stóra-Fjalli, og Stefán bóndi á Hlöðutúni.
23. Siguróur Snorrason, fæddur á Hólum í Hjalta-
dal 1769, sonur sjera Snorra Björnssonar, síðasti Flugu-
mýrarþingum, og konu hans Sigríðar Sigurðardóttur
frá Geitaskarði Sigurðssonar Einarssonar biskups ; út-
skrifaður úr Hólaskóla 1789. Hann var síðan skrifari
hjá Stefáni amtmanni J>órarinssyni, fór utan og tók
próf i dönskum lögum 25. april 1798 með 1. einkunn
í báðum prófum ; hann gjörðist þá aptur skrifari Ste-
fáns amtmanns, var lögsagnari Jóns sýslumanns Jak-
obssonar í Eyjafjarðarsýslu frá 1803 til 1805 og fjekk
Húnavatnssýslu 17. apríl 1805. Hann bjó þará Stóru-
Giljá og andaðist þar 5. apríl 1813. Sigurður sýslu-
maður var tvikvæntur; fyrri kona hans var Guðrún
(ý 1808) þorsteinsdóttir frá Laxamýri Benediktssonar,
og þeirra dóttir var Hólmfríður kona Jónasar bónda
Jónssonar á Auðunnarstöðum i Víðidal. Seinni kona hans
var Ingibjörg Björnsdóttir prests í Bólstaðarhlíð Jóns-