Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 1

Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 1
Brautin. En ef við nú reyndum að 'brjótast það beint, þó brekkurnar verði þar hærri? Vort ferðalag gengur svo grátlega seint, og gaufið og krókana höfum við reynt — og framtíðar landið er fjærri. Að vísu’ er það harmur, að vísu’ er það böl, hvað við erum fáir og snauðir; en það verður sonunum sárari kvöl að sjá að við kúrum í þessari möl, og allir til ónýtis dauðir. Þar bíða þó óðöl hins ónumda lands að entum þeim klungróttu leiðum: sú friðkeypta ættjörð hvers frjálsborins manns, sem felur hin skínandi sigurlaun hans að baki þeim blágrýtis heiðum. Og munið, að ekki var urðin sú greið til áfangans þar sem við stöndum, því mörgum á förinni fóturinn sveið, er frumherjar mannkynsins ruddu þá leið af alheimsins öldum og löndum. Og opt hefur frægasta foringjans blóð á fjöllunum klappirnar skolað, en það hefur örvað og eggjað hans þjóð, því alltaf varð greiðara þar sem hann stóð. það blóð hefur blágrýtið holað. i

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.