Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Side 4

Eimreiðin - 01.01.1895, Side 4
4 Og kvíðið þið engu, og komið þið þá, sem kyrrir og tvíráðir standið; því djarfmannlegt áræði’ er eldstólpi sá, sem eyðimörk harðstjórnar leiddi’ okkur frá, og guð, sem mun gefa okkur landið. Þ. E. Járnbrautir og akbrautir.* 1 »Járnbrautirnar eru vegir nútímans.« Með þessum orðurn byrjar ýtarlegt frumvarp til laga um smá- brautir, er þeir bankastjóri H. E. Berner og mannvirkjafræðingur Endre O.Johannesen báru upp á síðasta stórþingi'(þingskjal 153). Sem einkunnarorð yfir frumvarpinu hafa flutningsmenn þess þar að auki sett þessi heppilegu og sönnu orð hins fræga enska sagnaritara og þingmálagarps Macaulay’s: »Ekkert hefur eflt menningu þjóðanna meira en þær uppgötvanir, er minnkað hafa fjarlægðina í tíma og rúmi.« Menn munu af þessu einu geta ráðið í, hvert frumvarpið stefnir, eða að flutningsmenn þess vilja, að stórþingið og stjórnarvöldin yfir höfuð hagi sjer allt öðruvísi en hingað til gagnvart járnbrauta- gjörðinni og-öllu, er þar að lýtur. Þeir ætlast til, að á uppdrætti Noregs skuli ekki framar sjást að eins fáein svört stryk hingað og þangað, sem eiga að tákna járnbrautir. Nú á á uppdrætti Noregs að sjást járnbrautanet, sem dreifir sjer um land allt þvert og endi- langt og sameinar og bindur hvern landshluta við annan, hvert hjerað við annað. Allir bæir og öll byggðalög, að minnsta kosti hin stærri, eiga að öðlast hluttöku í þeim stórkostlegu gæðum, sem gufan hefur i för með sjer nú á tímum. Járnbrautagjörðin á að vera eins og hjarta, sem lætur lífið slá og leika um alla parta líkamans, ýmist gegnum hinar stærri, ýmist gegnum hinar minni æðar. Annað eins og þetta álitu menn fyr meir ómögulegt. Menn sögðu sem svo: Noregur væri fjallaland, en járnbrautirnar væru börn sljettlendisins. Auk þess væri svo strjálbyggt í Noregi, einar 6 hræður á hverjum □ kílómetra2, þar sem í Svíþjóð væru helmingi 1 Grein þessi er þýdd úr tímaritinu »Nordisk rundskue« (Norræn hringsjá), 15. jan. 1895, og er þar tekið fram, að hún sje rituð af járnbrautafræðingi. 1 kílómetri (— 1000 metrar) == 3186,2 fe’t eða tæplega a/8 úr danskri mílu.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.